|
Höfundarkynning
Kynning | Verkefni |
Bjargir | Ferli | Mat | Niðurstaða
Kynning
Þegar verið er að vinna með
bókmenntir í skólanum rekast kennarar oft á hversu erfitt getur verið
að finna upplýsingar um höfunda barna- og unglingabóka, einkum þá
yngri. Nú á tímum er það hluti af því að vekja athygli ungra
lesenda á bókmenntum að kynna höfunda þeirra. Netið er ágætur
miðill til að birta á nýjar upplýsingar og þar er stöðugt
hægt að uppfæra viðbætur. Á vefnum BarnUng er meiningin að koma upp
upplýsingabanka um höfunda barna- og unglingabóka á
íslensku.Þetta verkefni er liður í því.
Verkefni
- Verkefnið felst í að velja sér
einn höfund til kynningar
- Þú þarft að kynna þér nokkrar almennar
staðreyndir um ævi höfundar t.d. aldur og viðurkenningar
- Þú þarft að kynna þér þær bækur
og önnur verk sem höfundur hefur samið
- Þú þarft að hafa í huga til hverra
kynningin á að höfða, kennara, foreldra eða lesenda sem eru börn-
eða unglingar
- Þú þarft að hugsa um að framsetningin
sé þannig að hún veki áhuga á höfundinum.
- Uppsetning efnisins verður líka að taka
mið af markhópnum sem kynningin er gerð fyrir.
- Það skiptir t.d. máli bæði hvort
og hvernig þú notar myndefni og eins uppsetning textans t.d. notkun
millifyrirsagna
Bjargir
Á BarnUng-vefnum er listi yfir tiltækar handbækur
um höfunda barna og unglingabóka.
Á höfundasíðu
BarnUng bætast smám saman fleiri höfundar sem finna má um á
Netinu.
Höfundavefur
Máls og menningar og Forlagsins hefur upplýsingar um sína höfunda.
Flettið upp í Gegni
og Greini.
Reynið leitarvélar á Ísmennt t.d.
íslensku vélina Leit.is.
Í tímariti Ibby-samtakanna á Íslandi,
Börn og mennig, hafa birst kynningar á nokkrum yngri höfundum.
Ferli
- Fyrsta skrefið gæti verið að
skrá hjá sér þá höfunda sem manni finnst áhugaverðir og
skemmtilegir og velta fyrir sér úr hvaða möguleika maður sér á
að gera áhugaverða kynningu á hverjum um sig.
- Síðan væri gott að velta fyrir
sér hvernig verkin eftir höfundinn eru og hvernig hægt er að nýta
þau í kynningu á höfundinum. Til dæmis hvort höfundurinn hefur
skapað eftirminnilegar persónur eða umhverfi.
- Þriðja skref að afla upplýsinga
í heimildunum sem bent er á og víðar.
- Fjórða skref að áveða
markhópinn sem kynningin á að höfða til
- Fimmta skref að útfæra
kynninguna. (Ef þið viljið gera krækjur í aðra staði í Netinu
þá get ég séð um það fyrir ykkur ef þið kunnið það ekki.
Láta mig bara vita hvar á að vera krækja. Eins er með myndir)
- Og loks að senda afraksturinn fyrir 1.
apríl 2000
sem Assignment inn á Learning Space námsrýmið okkar
Mat
Kennarinn setur sig í stellingar ritstjóra vefsins
BarnUng þegar hann metur höfundarkynningarnar.
Hann hefur þá í huga fyrst og fremst hvort kynningin á höfundinum sé nógu vel skrifuð til að standast kröfur um
birtingu.
Lýsingin þarf að vera skýr í framsetningu og líflega stíluð.
Frjóar hugmyndir í efnistökum og
framsetningu eru eftirsóknarverðar.
- Sé kynningin skýr í framsetningu og
líflega stíluð og endurspegli frjóar hugmyndir
fær nemandinn
einkunn A eða 9-10.
- Sé kynningin vel frambærileg en
ritstjóranum finnist að hægt
væri að vera gera hana líflegri og/eða markvissari kynningu
fær nemandinn
einkunn B eða 7-8.
- Ef kynningin og framsetningin eru þannig að
ritstjóranum finnist hún ekki líkleg til að þjóna þeim tilgangi að vekja áhuga
markhópsins á höfundinum fær nemandinn einkunn C eða 5-6.
- Finnist kennara kynningin svo ósannfærandi að honum sýnist
að hún sé líkleg til að fæla frá áhuga á
verkum höfundarins fær nemandinn
falleinkunn og verður að gera aðra tilraun.
Niðurstaða
Kynningar ykkar verða sett á vefinn BarnUng sem
liður í að byggja upp gagnabrunn um barna- og unglingabókmenntir
á
íslensku á Netinu.
Þið eigið höfundarréttinn á textum ykkar og ekkert verður sett á
vefinn nema með ykkar leyfi. Þið getið líka sjálf ákveðið hversu
lengi efnið ykkar má vera á BarnUng.
Þessi vefleiðangur er saminn 22.
febrúar 2000 fyrir fjarnámskeið í grunnskólaskor KHÍ
Salvör Gissurardóttir þýddi þetta snið frá The Webquest Page. |