Smahaus.gif (733 bytes) Smatitil.gif (1006 bytes)
Kerla.gif (6896 bytes)

Forsíða - Frá nemendum
Meðmæli með bók

Stirni.gif (88 bytes) Kynning
Stirni.gif (88 bytes) Bókalistar
Stirni.gif (88 bytes) Höfundar
Stirni.gif (88 bytes) Kennsluhugmyndir
Stirni.gif (88 bytes) Heimildir
Stirni.gif (88 bytes) Námskeið

©María Kristín Óskarsdóttir
nemandi í fjarskóla KHÍ vor 2000

   * * * * * * * * * * * * * * *
 Ormurinn í Lagarfljóti

Höfundar:            Iðunn Steinsdóttir og Búi Kristjánsson
Útgáfuár:             1991
Útgefandi:            Námsgagnastofnun

 

Fleiri bækur eftir sömu höfunda: Iðunn og eplin.  Í henni er unnið með goðfræðileg efni sem henta mjög ungum nemendum ef kynna á t.d goðsögur.  Skemmtileg, auðveld og fræðandi bók.

  * * * * * * * * * * * * * * * * * * * * * * * * *

Af hverju þessi bók

* * * * * * * * * * * *
Það var fyrr í vetur að ég var að leita að einhverri góðri bók sem ég gæti notað fyrir bekkinn minn (3. bekk) og þannig reynt að efla áhuga þeirra á íslenskum bókmenntum og lestri almennt.  Mér fannst frekar lítið til af góðum bókum í skólanum sem hægt væri að vinna með á heildstæðan hátt og því fór ég og kafaði enn frekar í bókageymslu skólans.  Þetta er nýr skóli og ekki mikið til af bókum á lager.  Svo rakst ég á þessa bók og það sem heillaði mig fyrst við hana var teikningin framan á henni.  Hún var eitthvað svo leyndardómsfull og ævintýraleg.  Við nánari skoðun og lestur kom í ljós að þetta er hreint út sagt frábær bók og mjög svo spennandi.  Ekki nóg með það að hægt er að vinna mjög heildstætt íslenskuverkefni upp úr henni, heldur fá nemendur einnig að kynnast lífi og lifnaðarháttum fólks hér áður fyrr og þeir finna hvernig gamlar þjóðsögur lifna við og fá raunverulegan blæ.  Í leiðinni lærðu þau pínulitla landafræði.  Á slóðinni http://www.egilsstadir.is/ormur.html er t.d. hægt að lesa þjóðsöguna um Lagarfljótsorminn eins og hún birtist í þjóðsagnasafni Sigfúsar Sigfússonar.  

Í bókinni Ormurinn í lagarfljóti er sagan í anda goðsagna þar sem reynt er að skýra ýmis náttúrufyrirbæri.  Sem sagt, mjög spennandi og fróðleg bók sem grípur lesandann/hlustandann frá byrjun - ekki bara börn, heldur fullorðna líka.

  Söguþráður

* * * * * * * *
Ungri stúlku (ónafngreindri) er gefinn hringur úr gulli. Hún leggur hann undir lyngorm og setur svo í litla öskju.  Eftir skamman tíma stækkar ormurinn það mikið að stúlkan verður mjög hrædd og hendir honum í fljót sem kallast Lagarfljót.  Mörg ár liðu og fólk fór að verða vart við orminn.  Hann réðst á fólk og grandaði mörgum og fyrir vikið greip um sig skelfing og fólk hætti að ferðast um fljótið.

Til að ráða niðurlögum ormsins fá heimamenn Finna til að aðstoða sig.  Fólk trúði því að Finnarnir kynnu að galdra.  Eftir langan og erfiðan bardaga við orminn tókst þeim að binda hann.  Nú ríkti friður á fljótinu og fólk gat farið ferða sinna yfir það.

Árin liðu, en ormurinn var þó ekki úr sögunni.  Stundum setur hann á sig stóra kryppu sem stendur upp úr vatninu.  Þegar fólk sér þessa kryppu trúir það því að þetta boði stórtíðindi - eldgos, jarðskjálfta eða jafnvel hungursneyð - hver veit.  Enginn veit hvað muni gerast.  Síðasta setning sögunnar skilur lesandann eftir með spurningu sem hljóðar svo:

-Hvað heldur þú? - Út frá þessari spurningu er svo hægt að vinna ótal mörg verkefni sem auka áhuga nemenda jafnt á lestri sem og sögu þjóðarinnar, svo dæmi séu tekin.

 * * * * * * * * * * * * * * * * * * * * * *

Hvernig var bókin lögð fyrir nemendur og hvernig tóku þeir henni

Ég byrjaði á því að búa til verkefnahefti úr bókinni.  Þetta er heildstætt íslenskuverkefni sem sameinar alla sex þætti íslenskunámsins, þ.e.a.s. lestur, talað mál og framsögn, hlustun og áhorf, ritun og bókmenntir og málfræði. 

Í fyrstu spurði ég nemendur hvort þeir hefðu einhvern tímann heyrt talað um sæskrímsli eða eitthvað í líkingu við svoleiðis fyrirbæri.  Talið barst síðan til Egilsstaða og þær sögur sem ganga um Lagarfljót.  Að öllum umræðum loknum las ég bókina fyrir nemendurna og viðbrögðin komu mér virkilega á óvart.  Nemendur voru svo spenntir og forvitnir og þeir gátu sumir alls ekki setið kyrrir.  Niðurstaða mín var því sú að áhugi þeirra á bókinni og allri sögu í kringum alls kyns furðudýr var vaknaður.  Að lestri loknum hófst svo vinnan í verkefnaheftinu.  Þessi vinna stendur enn yfir og tekur þó nokkurn tíma í viðbót.

Náðust markmiðin

* * * * * * * * * * * *
Markmiðin náðust.  Það sé ég á áhuga þeirra fyrir sögunni og almennum áhuga á svona furðudýrum líkt og Lagarfljótsormurinn "á að vera".  Þau fræddust um það hve þjóðsögur skipta okkur miklu máli og hvernig við getum notað þær til að búa til sögur og koma ímyndunaraflinu á flug.  Höfundarnir, þau Iðunn og Búi eiga hrós skilið fyrir frábærar bækur því þau ná að auðvelda ungum lesendum skilninginn á flóknu og óhlutbundnu efni.   

 

Smastrik.GIF (161 bytes) Botn.gif (648 bytes)