![]() |
![]() |
||
![]() |
|||
©Bryndís
Guðmundsdóttir Sagan af bláa hnettinum Bókin Sagan af bláa hnettinum er eftir Andra Snæ Magnason og kom út fyrir síðustu jól (1999). Bókin hlaut Íslensku bókmenntaverðlaunin 1999 og hefur hlotið mikið lof gagnrýnanda. Andri Snær, sem fæddur er í Reykjavík þann 14. júlí 1973, hefur getið sér gott orð fyrir leikrit, ljóð og smásögur. Útgefnar bækur Andra Snæs eru þrjár fyrir utan Söguna af bláa hnettinum. Þær eru: Engar smá sögur, Bónusljóð og Ljóðasmygl og skáldarán. Sagan af bláa hnettinumBókin Sagan
af bláa hnettinum er hrífandi ævintýri skreytt áhrifamiklum
litmyndum Áslaugar Jónsdóttur. Sagan
gerist lengst úti í geimnum þar sem búa ótal börn sem fullorðnast
ekki og lifa óspjölluð og saklaus þar til dularfull vera, maður að
nafni Gleðiglaumur, lendir á hnettinum þeirra og kemur róti á lífsviðhorf
þeirra. Aðalpersónurnar
Brimir og Hulda leiða okkur í gegnum ævintýrið á einlægan hátt og
má segja að hún sé tileinkuð barninu í okkur öllum.
Erum við kannski búin að týna sjálfum okkur? Ævintýrið er óháð tíma
eins og svo mörg önnur ævintýri og sögusviðið er geimurinn.
Sagan er spennandi og margar hættur verða á vegi barnanna á leið
þeirra um myrka skóga, djúpa dali og loftin blá og reynir þá sem
aldrei fyrr á vináttu og ráðsnilld þeirra. Mikil spenna er í atburðarásinni og það er eins og
lesandinn sem og hlustendur fari ósjálfrátt inn í sögusviðið og
taki þátt í ævintýrinu. Hvers vegna þessi bók?Ástæða þess að ég mæli
með bókinni Sagan af bláa
hnettinum er sú að þegar ég las bókina fyrir bekkinn minn, sem
eru sjö ára nemendur, þá urðum við öll svo hugfangin að við gátum
ekki hætt að lesa. Allir biðu
í ofvæni eftir næsta kafla og eftirvæntingin skein úr augum nemenda
og það allra besta var að ég, kennarinn, var jafn spennt og
nemendurnir. Það er sagt að
aðall góðra barnabóka sé að þær séu við hæfi allra barna og
ekki síður fullorðinna og það var einmitt raunin við lestur bókarinnar.
Í bókinni er boðskapur sem allir geta tileinkað sér jafnt
ungir sem aldnir. Höfundur
tekur fyrir ýmislegt í lífinu og ímyndunaraflið leikur lausum hala.
Efni bókarinnar minnir mig mikið á eina af uppáhaldsbókunum mínum,
Litli
prinsinn
sem kom út 1943 í Frakklandi og var hún valin bók aldarinnar þar
í landi. Það á svo vel við
um báðar þessar bækur sem stendur á kápu bókarinnar, að sagan
sameini einfaldleik og dul, létt gaman og djúpa alvöru, og að hún sé
svo veruleg og óveruleg í senn að við vitum varla lengur við lestur
hennar hvort veruleikinn er draumur eða draumurinn veruleiki og sagan
endar í spurn, spurn um tilgang lífsins. “Sagan
af bláa hnettinum” á erindi til allra, ég hef lesið hana fyrir fjögurra
og tíu ára syni mína sem báðir urðu hugfangnir, sem og bekkinn minn.
Sagan vekur mann til umhugsunar um gildi lífsins og höfundur nær
á svo áhrifaríkan hátt að endurvekja ævintýrið.
Vonandi eigið þið eftir að nálgast bókina hvort sem er fyrir
ykkur sjálf eða fyrir nemendur ykkar og ekki yrði verra ef
bókin yrði sett á fjalir leikhúsanna, því hún á fullt
erindi þangað. |
|||