Smahaus.gif (733 bytes) Smatitil.gif (1006 bytes)
Kerla.gif (6896 bytes)

Forsíða - Námskeið
Verkefnalýsingar

Stirni.gif (88 bytes) Kynning
Stirni.gif (88 bytes) Bókalistar
Stirni.gif (88 bytes) Höfundar
Stirni.gif (88 bytes) Kennsluhugmyndir
Stirni.gif (88 bytes) Heimildir
Stirni.gif (88 bytes) Námskeið

3. verkefni; kennsluhugmynd

Kynning | Verkefni | Bjargir | Ferli | Mat | Niðurstaða

Kynning

Í síðasta verkefni völduð þið bók með það fyrir augum að vekja áhuga nemenda ykkar á bóklestri almennt og þar nefndi ég í kynningu að margt benti til að það yrði í auknum mæli hlutverk skólanna að ala börn upp við bókmenntalestur. Til að það lukkist þarf þó vísast að koma til góð samvinna heimila og skóla. En lokaverkefni á námskeiðinu er hugmynd ykkar um hvernig vinna mætti með barna- og/eða unglingabækur í skólanum. Þetta verkefni gildir 50% af lokaeinkunn.


Verkefni

  • Þú þarft að velta fyrir þér markmiði þínu með því að vinna með bókmenntir í skólanum og setja fram t.d. eitt aðalmarkmið og nokkur undirmarkmið
  • Þú þarft að velja bækur sem henta þínu markmiði
  • Þú þarft að kynna stuttlega þær bækur sem þú ætlar að vinna með
  • Þú þarft að lýsa hvernig þú ætlar að vinna með bækurnar í skólanum
  • Þú þarft að muna að taka fram hvernig þú ætlar að meta hvernig til tókst

Bjargir

Lesið greinina mína um bókmenntauppeldi í skólum sem eru vangaveltur mínar um hvernig staðan hefur verið. (Þið getið sem best verið ósammála mér og staðan hefur kannski breyst.)

Skoðið hugmyndir um foreldrasamvinnu sem ég kynnti stuttlega hér á vefnum.

Skoðið heimildalistann ef ske kynni að þar væri eitthvað sem þið vilduð glugga í.

Notið flokkuðu bókalistana til að rifja upp bókatitla.

Skoðið amerískar hugmyndir um barnabókmenntir og þverfaglega kennslu  ef þið viljið.

Annars er það eigið hugmyndaflug og reynsla sem gildir og um að gera að leyfa sér að fara óhefðbundnar leiðir.

Á bókasafni KHÍ eru  nokkrar B.Ed. ritgerðir sem fjalla um notkun barna- og unglingabókmennta í kennslu. Ég nefni hér tvær ykkur til fróðleiks þó ég viti að fæst ykkar eiga kost á að lesa þær fyrir þetta verkefni.

  • Hildur Heimisdóttir. 1994. Barna- og unglingabækur -  Grunnur að heildstæðu námi -
  • Elfa Dögg Einarsdóttir og Soffía Guðmundsdóttir. 1997. Barnabækur í námi

 


Ferli

  1. Fyrsta skrefið ætti að vera þankahríð þar sem þú skrifar öll hugsanleg markmið með að lesa bækur með börnum og unglingum í skóla. Síðan er að velja þau markmið sem þú vilt vinna með í þessu verkefni.
  2. Annað skref að velta fyrir sér hvaða bækur myndu henta til að ná markmiðunum.
  3. Þriðja skref gæti verið að glugga í heimildirnar eða bjargirnar. (2.og 3. geta víxlast)
  4. Fjórða skref að lesa bækurnar sem þú ætlar að vinna með.
  5. Fimmta skref að útfæra kennsluhugmyndirnar
  6. Og loks að senda afraksturinn fyrir 1. des. 1998 til tjona@ismennt.is

 


Mat

Metið verður samkvæmt almennum viðmiðunum í kennsluskrá KHÍ. Munið t.d.

  • gott röklegt samhengi almennt
  • samræmi milli markmiða og kennsluhugmynda
  • frjóar hugmyndir
  • að mat sé í samræmi við markmið og útfærslu kennsluhugmynda

Niðurstaða
Vonast er til að hugmyndir ykkar geti síðan orðið kveikja að lifandi umræðu t.d. á vefnum okkar, um hvernig við viljum glæða áhuga barna og unglinga á bókmenntalestri í skólanum.

Kennsluhugmyndir ykkar verða settar á vefinn BarnUng undir Námskeið haust 1998 svo að við getum lært af hugmyndum hvers annars. Ef þið hafið eitthvað á móti því látið þess þá getið.


Salvör Gissurardóttir þýddi þetta snið frá The Webquest Page.

Smastrik.GIF (161 bytes) Botn.gif (648 bytes)