Velkomin(n) á samnorrænt vefsvæði um nýsköpunarstarf skólabarna.
 
Eitt sinn spurði 10 ára gömul stúlka kennara sinn þegar hún fékk það verkefni að leita að óleystum þörfum í umhverfi sínu: "Kennari, hvað er hugmynd?". Kennarinn svaraði af bragði: "Allt eru hugmyndir, ég og þú, allir hlutir, allt í kringum okkur. Hugmyndirnar eru innri veruleiki hlutanna". Stúlkan spurði þá aftur: "Kennari, ertu þá ósýnilegur?"
 
Þessi samræða varð kennaranum tilefni til nokkurra vikna umhugsunar um spurninguna "Hvað er hugmynd?" og enn þann dag í dag hefur hann ekki fundið á því fullnægjandi skýringu. Samræðan er lýsandi fyrir hina tæru og beinskeyttu hugsun barna. Þau eru næm á umhverfi sitt og spyrja hina fullorðnu oft spurninga sem okkur finnst svo sjálfsagðar og auðvelt að svara, en verða okkur svo tilefni til mikilla vandaveltna. Og mjög oft koma börn fram með snjallar lausnir er hinn fullorðni sér ekki en eru svo einfaldar og snjallar að um þær er sagt: "Hvers vegna hefur engum dottið þetta í hug fyrr?".
 
Kveikjan að þessu vefsvæði er farandsýningin Fantasi Design sem á að sýna almenningi á norðurlöndunum nýsköpunarverk grunnskólabarna. Sýningin mun ferðast um öll norðurlöndin árið 2000 og árið 2001 fer sýningin þaðan til Bandaríkjanna, Kanada og Japan.
Verkefni tengd hugviti og nýsköpun barna hafa sprottið upp á flestum norðurlandanna, en í mismunandi formi og með mismunandi áherslum. Hvert verkefni hefur sína sögu og sín sérkenni, en öll eiga þau það sammerkt að leggja megináherslu á sköpunargáfu barnsins og mátt. Þessi vefur hefur það að aðalmarkmiði að tengja saman þessi verkefni og áhugafólk um hugvit barna og safna saman upplýsingum um mismunandi nýsköpunarverkefni á einn aðgengilegan stað. Enn fremur á hann að þjóna því hlutverki að vera upplýsingarveita og samskiptatæki aðila sem vilja vinna saman að þessu málefni.Og þannig geta allir aðilar miðlað af reynslu sinni og veitt hvor öðrum stuðning.

Allar ábendingar um það sem betur má fara eru því vel þegnar og hægt að senda til ritstjórnar vefsíðunnar á netfangið abc@khi.is