|
|
- Vefurinn
-
- Vefurinn "Börn og
hugmyndir" er unninn af frumkvæði nokkurra
einstaklinga og hópa sem starfað hafa
að eflingu hugvits meðal barna á
norðurlöndum.
- Þegar litið er yfir
það starf sem unnið hefur verið
á norðurlöndunum má sjá
margt sameiginlegt en líka margt
sérstakt. Ráðist var í
það að byggja upp vef til að
miðla upplýsingum um það starf
sem nú þegar hefur farið fram
á norðurlöndum í þeirri
von að það geti styrkt enn frekari
þróun þess.
- Kennaraháskóli
Íslands og Ísmennt munu fóstra
vefsvæðið á búnaði
sínum og veita honum nauðsynlega
þjónustu. Norræna
ráðherranefndin styrkir gerð
vefsins.
-
- Markhópar
- Vefnum er ætlað
að upplýsa almenning og stofnanir um
eðli og mikilvægi
nýsköpunarstarfs fyrir uppeldi barna.
Jafnframt er vefnum ætlað að vera
hjálpartæki í formi
upplýsingaveitu til handa þeim sem eru
beinir þátttakendur í
nýsköpunarstarfi.
- Skóla og barnavefur er
til dæmis sérstaklega ætlaður
markhópnum börnum og kennurum. Og
hægt verður að nota sérstaka
leitarvefi er tengjast hugverkum sem búið
er að skrá og ræða einstök
mál á
vefráðstefnum.
-
- Uppbygging
- Vefurinn er byggður upp
í þremur
meginþáttum:
- 1.Yfirlitsvefur er gerir grein
fyrir eðli nýsköpunarstarfs og
þeim nýsköpunarverkefnum (sjá
efnisyfirlit vinstra megin) sem eru í gangi
á norðurlöndum í
dag.
- Sá hluti sem
þú ert að lesa núna er hluti
af þessu sameiginlega yfirliti eða inngangur
að öllu því sem finnst um
nýsköpunarstarf meðal barna á
norðurlöndunum. Í þessum
inngangi er fjallað um þætti sem eru
sameiginlegir með öllum verkefnunum.
- Til þess að
gæta jafnræðis þá
verður sami inngangur skrifaður á
öllum norrænu tungumálunum,
íslensku, dönsku, sænsku, norsku og
finnsku. Jafnframt verða allar upplýsingar
þýddar á ensku og settar á
sérstakan vef sem verður einskonar
safnvefur sem hvert land getur nýtt að vild
- 2. Þáttur hvers
lands (efst uppi), sem ritstjóri hvers lands
hefur umsjón með. Það sem kemur
svo inn á svæði hvers og eins lands
er að sjálfsögðu í
höndum þeirra sem vilja koma vinnu sinni
á framfæri. Hér verður
áhersla lögð á sérstakan
skólavef tileinkaður kennurum og
öðru skólafólki, barnavef sem
ætlaður er börnum sem eru að
fást við nýsköpun og
greinargerð eða vefsíður um
þau verkefni sem eru í gangi í
hverju landi. Ennfremur gerir hvert land grein fyrir
samstarfsaðilum sínum og þeim er
styðja verkefnin.
- 3. Sameiginlegir
þættir(neðst niðri) sem eru ekki
beintengdir við einstök verkefni, en
nauðsynlegt að hafa aðgang að eins og
krækjur, ráðstefnur,
leitarsíður, fréttabréf,
samstarfsaðilar og styrktaraðilar.
-
- Veftré
- Á eftirfarandi mynd
má sjá nákvæmari
uppbyggingu vefsins til frekari
glöggvunar.
-
|