Íslenska esperantosambandið - Islanda Esperanto-Asocio

stofnað 1950. Sambandið er opið öllum esperantistum og áhugamönnum um alþjóðamálið. Esperantistafélagið Auroro í Reykjavík er aðili að sambandinu svo og einstaklingar víða um land.

Málgagn: LA VELO

Formaður: Kristján Eiríksson
Varaformaður: Hilmar Bragason
Ritari: Loftur Melberg Sigurjónsson
Gjaldkeri: Pétur Yngvi Gunnlaugsson
Meðstjórnendur: Ína Gísladóttir, Jón Elíasson og Steinþór Sigurðsson
Varamenn í stjórn: Þórey Kolbeins, Steinunn Sigurðardóttir
Endurskoðendur Reikninga: Jón Hafsteinn Jónsson, Stefán Briem
Aðsetur: Skólavörðustígur 6 b, 101 Reykjavík
Póstfang: IEA, Pósthólf 1081, 121 Reykjavík
Sími: 552 72 88

Markmið

  • að vinna að útbreiðslu alþjóðamálsins esperanto á Íslandi;
  • að vera samstarfsvettvangur esperantofélaga og einstaklinga sem lagt hafa stund á málið eða hafa hug á að gera það;
  • að vinna með alþjóðlegum esperantosamtökum að framgangi málsins, m.a. með því að vera aðili að Alþjóðlega esperantosambandinu - Universala Esperanto-Asocio;
  • að veita margskonar þjónusu, útvega bækur, tímarit, myndbönd, hljóðbönd o.fl.;
  • að hafa á takteinum upplýsingar um margs konar þjónustu fyrir esperantista erlendis, s.s. þátttöku í alþjóðlegum mótum, ódýra eða ókeypis gistiþjónustu o.fl.;
  • að veita erlendum esperantistum svipaða þjónustu á Íslandi;
  • að kynna Ísland og íslenska menningu meðal erlendra esperantista
  • að gefa út bækur á og um esperanto

    Auroro

    Esperantistafélagið Auroro var stofnað 1944 að forgöngu Ólafs S.Magnússonar kennara. Það hefur starfað óslitið síðan. Fundir eru haldnir fyrsta föstudag september, október, nóvember og desember og síðasta föstudag janúar,febrúar, mars, apríl og maí. Fundarstaður er Skólavörðustígur 6 b og hefjast fundirnir kl. 20:30. Þeir fara að langmestu leyti fram á esperanto.

    Formaður: Steinþór Sigurðsson
    Varaformaður: Guðrún Friðgeirsdóttir
    Ritari: Baldur Ragnarsson
    Gjaldkeri: Áslaug Hafliðadóttir
    Meðstjórnandi: Kristján Eiríksson

    Bókasafn

    Bókasafn íslenskra esperantista (Biblioteko de islandaj esperantistoj) er til húsa að Skólavörðustíg 6 b. Í því eru bækur á og um esperanto og rit sem tengjast planmálafræði yfirleitt. Safnið er ennþá óskráð og ekki verður fullyrt um fjölda bóka.

    Bókaþjónusta

    Aðalmiðstöð bókadreifingar er hjá Alþjóðlega esperantosambandinu (Libroservo de Universala esperanto-Asocio) en Íslenska esprantosambandið veitir upplýsingar þar að lútandi.

    Bréfanámskeið

    Íslenska esperantosambandið hefur látið gera bréfanámskeið í Esperanto. Um er að ræða 10 bréf, kennslubók og orðasafn ásamt tveimur hljóðsnældum. (sjá ennfremur Nám í esperanto).

    Nám og kennsla í esperanto

    Margir esperantistar hafa lært esperanto á eigin spýtur, þ.e. með sjálfsnámi. Esperantosambandið er að sjálfsögðu reiðubúið til að aðstoða við útvegun námsgagna.

    Af öðrum leiðum má nefna:
    1. Námskeið einu sinni til tvisvar í viku.
    2. Bréfanámskeið
    3. Gagnvirkt námskeið sem sækja má á netið. 4. Námskeið á myndbandi.
    5. Kynningarnámskeið 2x2 kennslustundir.
    6. Esperanto er valgrein í framhaldsskólum með áfangakerfi. Það hefur einkum verið kennt í Menntaskólanum við Hamrahlíð og Menntaskólanum á Laugarvatni.
     

    Bækur um esperanto á íslensku

    Nokkuð er til af íslenskum bókum um esperanto. Þar má nefna "Alþjóðamál og málleysur" eftir Þórberg Þórðarson, og "Esperanto. Mál, saga, bókmenntir" eftir Baldur Ragnarsson

    Útgáfustarfsemi á vegum íslenskra esperantista

    Þjónusta