Ráðist inn í þorpið

Af ræningjunum er það að segja, að þeir fóru í þrem hópum í kaupstaðinn. Sá hópur, sem austast fór, var fljótastur og tafðist ekki við neina bæi. Komu þeir með miklum óhljóðum austan við Helgafell og réðust á Kirkjubæina og Vilborgarstaði. Miðhópurinn stefndi beint að höfninni og hefur að líkindum rænt bæi, eins og Dali á leiðinni. Vestasti hópurinn lagði svo til atlögu við bæina umhverfis Ofanleiti. Á efstu bæjunum hefur fólkið orðið verst úti, þar sem ræningjana bar svo fljótt að og óvænt. Neðst í bænum komst fólkið fremur undan og leitaði skjóls í hellum og gjótum. Hvar sem ræningjarnir fundu fólk á vegi sínum, tóku þeir það og bundu og ráku á undan sér niður í þorpið. Sama gilti jafnvel líka um búpening, sem á vegi þeirra varð. Þeir, sem komust ekki nógu hratt, voru höggnir í sundur og drepnir.

Talið er, að ræningjarnir sem á land komu, hafi að minnsta kosti verið um 3 þúsund. Þeir voru búnir að dreifa sér og fara fram og aftur um alla eyna að kvöldi þess sama dags og þeir stigu á land eða 16.júlí. Leitinni héldu þeir áfram aðfaranótt hins 17.júlí, þann dag allan og 18.júlí allan til kvölds. Segir frá því, að þeir hafi gengið fjöllin og leitað hella og skúta, svo að enginn kæmist undan. Þeir klifruðu upp á syllurnar í Fiskhellum og tóku þaðan nokkrar konur og börn, sem leitað höfðu skjóls í fiskbyrgjunum. Enn má sjá nokkur þessara byrgja utan í klettaveggnum, þar sem fiskur er geymdur.

Til baka