Haldið brott

Í Dönskuhúsunum á Skansinum geymdu ræningjarnir fólkið og héldu því þar, uns það var flutt út í skip. Höfðu skipin leitað inn á höfnina og lagst þar, þegar ekki þurfti að óttast neitt viðnám heimamanna lengur. Var fólkinu síðan smalað úr húsunum og látið róa út í skipin, en þar hitti það fyrir fleiri Íslendinga, sem ræningjarnir höfðu komist yfir. Á miðvikudagskvöld, þann 18.júlí voru allir komnir út í skipin nema nokkuð af gömlu fólki, sem ræningjunum fannst ekki þess virði að flytja með sér til að selja mansali. Þetta fólk skildu þeir eftir inni í húsunum og kveiktu í. Frá þessu sagði piltur einn er komst af með þeim hætti, að hann skreið eftir gólfinu í mannþrönginni og komst út um leynidyr, sem ekki hafði verið læst.

Um miðjan morgun, fimmtudaginn 19.júlí voru ræningjarnir tilbúnir. Sigldu þeir á braut með herfang sitt í öllum skipunum, ásamt danska kaupfarinu, sem ekki hafði sokkið eins og ráðgert var. Í kveðjuskyni skutu þeir mörgum fallbyssuskotum, sigldu síðan inn fyrir Elliðaey og tóku loks stefnu á haf. Setti nú mikinn harm og kvein að fólkinu, er það sá eyjarnar og landið hverfa sýnum. Má nærri geta, að mörgum hefur verið þungt innanbrjósts, enda margt fráskilið ástvinum sínum, tekið með hervaldi og flutt á brott til fjarlægra landa til þess að gangast undir ævilanga þrælkun.

Til baka