Séra Ólafur á Ofanleiti keyptur heim

Strax eftir Tyrkjaránið hófst fjársöfnun hér meðal ættingja og vina til þess að reyna að kaupa herleitt fólk úr þrældómnum. Mun þetta lítinn árangur hafa borið, enda aðstandendur fátækir og lausnargjald hátt. Presturinn að Ofanleiti, séra Ólafur Egilsson, sem herleiddur var ásamt konu sinni og börnum, var strax leystur úr haldi mánuði eftir að ræningjaskipin komu til Afríku. Var hann sendur frá Algeirsborg til Danmerkur og þaðan hingað heim með þau skilaboð, að hægt væri að kaupa fólkinu frelsi. Tók ferð hans um Evrópu um eitt ár, og lenti hann í ýmsum ævintýrum á leiðinni.

Þegar séra Ólafur komst svo loks til Kaupmannahafnar, fann hann þar fyrir marga vinveitta og háttsetta menn. M.a. hitti hann kónginn. Danir voru á þessum árum í stríði við Þjóðverja og litlir peningar til að leysa Íslendinga úr ánauð.

Ólafur hélt því vonsvikinn heim til Íslands og kom hingað til Vestmannaeyja sumarið 1628. Þegar hann sté hér á land, 6.júlí það ár, voru margir til að bjóða hann velkominn og spyrja frétta af vinum og vandamönnum. Hefur Ólafur þurft að svara mörgum spurningum, sem bæði hafa orðið fólkinu til huggunar og hryggðar. Ólafur skrifaði bók um það sem á daga hans dreif frá því honum var rænt og þar til hann kom aftur hingað. Bókin heitir Reisubók séra Ólafs Egilssonar

Til baka