Upplýsingatækni og foreldrar

----------------------------------------------------------

Um leið og tölvueign landsmanna eykst, og upplýsingatækni og upplýsingaleit gegnum tölvunet verður raunhæfur möguleiki á fleiri heimilum, vaknar sú spurning hvort ekki megi nýta þennan kost til bættra boðskipta milli heimila og skóla.

Ef grannt er skoðað, eru ýmsar upplýsingar sem hægt er að hafa aðgengilegar á tölvutæku formi og koma sér vel fyrir foreldra að hafa aðgang að með þeim hætti. Með ört vaxandi tækniþróun eiga þeir möguleikar eflaust eftir að vaxa ört í framtíðinni.

Á þessari síðu er að finna ýmislegt sem ætti að gagnast foreldrum, bæði almenns eðlis og staðbundið við Barnaskóla Vestmannaeyja.

Vonandi opnar þessi síða augu okkar fyrir því að strax í dag er hægt er að nota upplýsingatæknina sem góðan kost í samskiptum heimila og skóla.


  • Hvaða gagn hafa foreldrar af vefsíðum skóla?
  • Hvernig hjálpa ég barninu mínu að nota tölvuna?
  • Safn af slóðum sem hentað gætu foreldrum
  • Til baka á forsíðu.


    ©Eygló Björnsdóttir - 25.maí 1997.

    Síðast uppfært 04.feb. 2000.