Hvernig hjálpa ég barninu mínu að nota tölvuna?
Margir foreldrar velta fyrir sér hvernig þeir geti kennt börnum sínum að nota og umgangast tölvuna á skynsamlegan hátt.Í þessu eins og svo mörgu sem viðkemur starfi og námi barnanna okkar er áhugi fyrir því sem þau eru að gera, oftast það sem skilar sér best. Foreldrar þurfa ekkert endilega að kunna á tölvur sjálfir til að geta sýnt áhuga á því sem börnin þeirra eru að gera í tölvunni. Þeir geta t.d. ýtt undir uppbyggilega notkun tölvunnar með því að vera vakandi fyrir að kaupa ýmiss konar forrit og leiki sem hafa eitthvert fræðslugildi, í bland við stríðs-og drápsleikina sem svo mörg börn eru upptekin af í dag.Námsgagnastofnun selur t.d. öllum almenningi alls konar fræðsluforrit á sanngjörnu verði. Einnig eru fáanleg mörg, góð slík forrit, hjá þeim verslunum sem selja tölvuforrit. Mörg samskiptaverkefni á Netinu eru þannig uppbyggð, að þau gera ekkert síður ráð fyrir að það séu foreldrarnir sem stjórna börnunum í verkefnunum heldur en kennararnir í skólunum.Sem dæmi má nefna alþjóðlega samskiptaverkefnið Kidlink.Þess bera að geta að nú er búið að stofna íslenskt Kidlink. Kennari íslenskra barna í Uppsölum í Svíþjóð sér um skemmtilegan vef sem heitir "Langförull". Þar eru ýmis verkefni fyrir börn að taka þátt í. Margir foreldrar eru ágætlega í stakk búnir til að aðstoða börnin við að lesa t.d vefsíður og geisladiska á erlendu tungumáli. Einnig geta þeir, eða jafnvel afi og amma, aðstoðað þau við að vinna úr ýmsum upplýsingum og koma þeim á tölvutækt form. Það er líka ómetanleg hjálp ef þeir foreldrar sem hafa erlend tungumál á valdi sínu væru tilbúnir að aðstoða börnin sín og bekkjarfélaga þeirra, ef bekkurinn tekur t.d. þátt í einhverju samskiptaverkefni við erlenda skóla. Þar er "málleysið" oft erfiðasti þröskuldurinn og myndi létta mikið undir með kennaranum ef foreldrar gætu komið eitthvað inn í með aðstoð við þýðingar. Síðast uppfært 04.feb. 2000. |