----------------------------------------------------------

Í dag.(árið 1997)

----------------------------------------------------------

Landafræðikennsla í flestum skólum í dag, virðist mér vera með nokkuð hefðbundnum hætti.Börnin lesa námsbækurnar, unnið er með kort og verkefni unnin.
Sumir vinna í hópvinnu að "plakatagerð" um afmarkað efni. Oftast eru heimildirnar í þessari vinnu, bækur sem hægt er að fá á skólasafninu í viðbót við námsbækurnar.

Einn og einn kennari lætur nemendur sína skrifa bréf til barna í öðrum skólum til að fá upplýsingar um þá landshluta sem viðkomandi skóli er í. Einnig eru stundum send bréf í skóla erlendis til að koma á "vinabekkjasamböndum" Ef skoðað er námsefnið sem ætlað er fyrir 5 bekk grunnskólans er ekkert sérstakt í kennsluleiðbeiningum sem hvetur til notkun upplýsingatækni. Myndbönd um Ísland hjá Námsgagnastofnun eru af skornum skammti. Helst má þar nefna Stiklur-Ómars Ragnarssonar. Það er mjög gott efni, svo langt sem það nær, enda þeir þættir ekki gerðir með kennslu 10 ára barna í huga

Sárlega finnst mér þó vanta myndbönd sem sérstaklega eru ætluð til kennslu og sniðin að þeim námsbókum sem notaðar eru.Veit ég ekki betur, en hugmyndin hafi verið að gefa út myndbönd með bókunum Land og líf og Landshorna á milli en þau hafa ekki séð dagsins ljós enn.

Ef skoðað er námsefni 6.bekkjar, má segja að þar sé staðan nokkuð betri. Fyrir skömmu var gefinn út myndbandaflokkur sem ber heitið "Við Norðurlandabúar" og eru í flokknum 18 myndbönd sem fjalla um líf fólks á Norðurlöndum.Af þeim eru 3 sem fjalla um Ísland.

Til baka.


©Eygló Björnsdóttir - 25.maí 1997.

Síðast uppfært 04.feb. 2000.