----------------------------------------------------------

Hvað segir námskráin?

----------------------------------------------------------

Ef Aðalnámskrá grunnskóla sem Menntamálaráðuneytið gaf út í maí 1989 er skoðuð, virðist við fyrstu sýn ekki vera mjög margt sem hvetur til notkun upplýsingatækni við kennslu á samfélagsgreinum, þ.m.t. landafræði.
En ef grannt er skoðað, er þó ýmislegt sem hvetur til þeirra vinnubragða.

Hér að neðan eru nokkur atriði úr námskránni sem styðja þetta.

  • "Þá ber að geta þess að uppeldisskilyrði á heimilum hafa breyst vegna margs konar tækninýjunga. Þegar í bernsku verja flest börn talsverðum tíma í að horfa á sjónvarp og myndbönd og fást við ýmiss konar tölvuleiki." (Aðaln.skrá, bls. 11)

  • " Fjölmiðlar hafa þar mikil áhrif og eru nánast í samkeppni við heimili og skóla um afstöðu til ýmissa lífsgilda. Í skólastarfi þarf að leggja áherslu á að nemendur læri að meta sjálfir stöðugan straum upplýsinga og áhrifa sem bæði börn og fullorðnir verða fyrir." (Aðaln.skrá, bls. 11)

  • "Engin þjóð er annarri æðri og leggja ber áherslu á að bæði er um að ræða réttindi og skyldur í samfélagi þjóða. Líf mannsins á jörðinni veltur á gagnkvæmum skilningi og vináttu þjóða heims. Grunnskólinn getur ýtt undir þessi sjónarmið með því að efla víðsýni og skilning nemenda á menningu og kjörum annarra þjóða og sameiginlegum menningarverðmætum alls mannkyns". (Aðaln.skrá, bls. 12)

  • "Mikilvægt er að huga að tengslum skólasafns við önnur söfn, bókasöfn, og kennslugagnamiðstöðvar, jafnvel gagnabanka. Á þann hátt er hægt að tryggja aðgang að fjölbreyttum gögnum og upplýsingum og er það ekki síst brýnt fyrir fámenna skóla." (Aðaln.skrá, bls. 18)

  • " Sem dæmi um námsgögn má nefna námsbækur, kennsluleiðbeiningar, handbækur, myndbönd, hljómbönd, veggspjöld, tölvuforrit og efni til verklegrar kennslu. Auk námsgagna þarf margvísleg kennslutæki, ekki síst í verklegri kennslu. Með kennslutækjum er t.d. átt við eldhúsbúnað, smíðaáhöld, smásjár, tölvur og myndvarpa". (Aðaln.skrá, bls. 18)

  • "Fræða nemendur og veita þeim tækifæri til að afla sér þekkingar, leikni og temja sér hagkvæm vinnubrögð sem stuðla að stöðugri viðleitni til þroska og menntunar".(Aðaln.skrá, bls. 23)

  • "Nemendur hafa sterka þörf til að rannsaka, afla sér vitneskju, leita lausna, þjálfa margs konar fimi og færni. Það að vera virkur í athugun, rannsókn og athöfnum, þjálfar huga og hönd og veitir haldbesta þekkingu og reynslu". (Aðaln.skrá, bls. 27)

  • "Skipan námsins þarf að vera þannig að nemendur fái tækifæri til að hafa frumkvæði og starfa jafnframt að krefjandi en viðráðanlegum verkefnum sem veiti þeim nýja reynslu og aukið víðsýni, öryggiskennd og jákvæða sjálfsmynd." (Aðaln.skrá, bls. 27)

  • "Sumir mikilvægir og jafnvel lögboðnir námsþættir falla ekki undir neina sérstaka námgrein þótt þeim sé sinnt að einhverju marki í ýmsum greinum. Sem dæmi má nefna umferðarfræðslu, fíknivarnir og tölvunotkun".(Aðaln.skrá, bls. 31)

  • Megintilgangur náms í samfélagsfræði er m.a. að nemendur:
    "- verði færir um að afla sér upplýsinga, vega þær og meta og draga af þeim skynsamlegar ályktanir" (Aðaln.skrá, bls. 115)

  • Eitt af leiknimarkmiðum náms í samfélagsfræði er m.a. að:
    "- afla sér upplýsinga úr rituðum heimildum, t.d bókum, tímaritum, dagblöðum, af myndum (þ.á.m. kvikmyndum og sjónvarpi), með viðtölum, á vettvangi, með tilraunum og athugunum, úr tölum, töflum, kortum og gröfum. (Aðaln.skrá, bls. 118)

  • " Leggja þarf áherslu á vettvangsathuganir og kannanir og aðrar aðferðir þar sem nemendur eru virkir í upplýsingaleit" (Aðaln.skrá, bls. 120)

  • " Nú er orðið algengt að upplýsingar séu geymdar í tölvutækum upplýsingasöfnum. Mikilvægt er að skólar hafi tækifæri til þess að tengjast slíkum upplýsingasöfnum á Íslandi og erlendis. Einnig getur verið fróðlegt og spennandi fyrir nemendur og kennara að tengjast öðrum skólum bæði innan lands og utan". (Aðaln.skrá, bls. 177)

Ég læt hér með þessum tilvitnunum lokið, en eflaust hefði mátt tína til sitthvað fleira.

Til baka.


©Eygló Björnsdóttir - 25.maí 1997.

Síðast uppfært 04.feb. 2000.