Foreldrar og skólavefsíður.Eftir því sem fleiri heimili verða tölvuvædd, opnast nýjir möguleikar í samskiptum heimila og skóla. Allmargir grunnskólar á landinu hafa komið sér upp heimasíðum á Internetinu. Á þessum síðum eru ýmsar gagnlegar upplýsingar fyrir foreldra.
Þar er oftast listi yfir þá kennara sem kenna við skólann, ásamt upplýsingum um viðtalstíma þeirra.Flestir kennarar hafa netföng í dag og á skólasíðunum er hægt að finna netföng þeirra og senda þeim tölvupóst.Kannski er það ekki svo fjarlægt að kennarar og foreldrar geti sent ýmis konar skilaboð á milli um námið og nemendurna á þennan hátt og þannig smám saman aflagt alla "skilaboðamiðana" sem í dag eru oft á tíðum sendir á milli með börnunum.
Í framtíðinni er vel hægt að hugsa sér að foreldrar eigi aðgang t.d. að námsmati og vitnisburði um börn sín á tölvutæki formi hjá skólunum í gegnum tölvunet.
Síðast uppfært 04.feb. 2000. |