nam_fyrir_fjark.gif (1185 bytes)


 
     logo_sk.gif (3271 bytes)


Markmið námsins
Tilhögun námsins
Umsjón námsins
Kennarar
Vefur fyrir hóp 2
Vefur fyrir hóp 3
Kennsluáætlanir

  © Íslenska
  menntanetið

  Umsjón
  Jóna Pálsdóttir

 

 

Kennsluáætlun

Þrjár lotur
Náminu er skipt í þrjár lotur: Sú fyrsta verður staðbundin dagana 11.-13. ágúst 1999. Síðan tekur fjarnám við í fimm mánuði. Það verður brotið upp með staðbundinni lotu í janúarlok. Náminu líkur í lok mars 2000.
Fyrsta lota Staðbundin í Endurmenntunarstofnun HÍ, Dunhaga 7 Reykjavík
Dagskrá 11.-13. ágúst 1999 Fara efst á síðu.

Miðvikud. 11. ágúst 1999 Fjarnám2

09:00 Kynning - hópur: Fjarnám2
11:00 Farið yfir vetrarstarfið. Jóna Pálsdóttir deildarstjóri upplýsingadeildar Íslenska menntanetsins, fjarkennari við VMA.
   
11:30 Hádegishlé
13:00 Vefsíðugerð og kennslufræði vefsíðna. Guðjón Ólafsson Framhaldsskóla Vestfjarða
15:00 Skipting í vinnuhópa - markmið skilgreind. JP
16:00 Fjarnám undirbúið. JP
17:00 Dagskrárlok.


Fimmtudagur 12. ágúst 1999 Báðir hópar
09:00 Rannsóknir sem tengjast fjarnámi. Sólveig Jakobsdóttir Kennaraháskóla Íslands
10:00

Umræður - kaffi

10:30

Netkennsla.

Lára Stefánsdóttir, Menntaskólanum á Akureyri

11:30 Hádegishlé
13:00

Vefsíðugerð í Word og fleiri forritum. Tómas Rasmus, ML & Ljósafossskóla

14:00 Notkun póstlista, vefsíðna, samræðuvefja og spjalls í fjarkennslu Þórunn Óskarsdóttir, Fjölbrautaskólanum við Ármúla
15:00 Gagnvirk próf og kennslufræðilegt gildi þeirra Ásrún Matthíasdóttir Menntaskólanum í Kópavogi

16:00-17:00

Vefumhverfi námsins kynnt. JP

Föstudagur 13. ágúst 1999 Fjarnám3

09:00 Kynning - hópur: Fjarnám3
11:00 Farið yfir vetrarstarfið. Jóna Pálsdóttir upplýsingastjóri Íslenska menntanetsins, fjarkennari við VMA.
   
11:30 Hádegishlé
13:00 Vefsíðugerð og kennslufræði vefsíðna. Guðjón Ólafsson Framhaldsskóla Vestfjarða
15:00 Skipting í vinnuhópa - markmið skilgreind. JP
16:00 Fjarnám undirbúið. JP
17:00 Dagskrárlok.

 

Önnur lota Fjarnám
Ný verkefni verða, að öllu jöfnu, lögð fram í viku hverri. Gert er ráð fyrir að þátttakendur athugi daglega hvort póstur eða tilkynningar hafi borist. Skil á niðurstöðum úr umræðum eða verkefnum verða á þriðjudögum. or_upp.gif (883 bytes)

Ágúst

Ráðstefnur reyndar

Umræða á ráðstefnu. Um leið og ráðstefnufyrirkomulagið er æft er gott að nota tækifærið og fjalla um það sem gert var í fyrstu lotu.

September

Kennslufræði fjarkennslu / fjarnámsumhverfi

Umræða um kennslufræði fjarkennslu. Greinar og bækur, sem vísað er á, lesnar. Umræða fer fyrst fram með notkun póstlista. Síðan verða ýmis forrit/verkfæri til fjarkennslu prófuð fyrir umræðuna. Hópaskipting og niðurstöður hópa kynntar vikulega. Samantekt í lok mánaðarins.

Október

Mat á kennsluefni af Internetinu

Hópaskipting eftir námsgreinum. Leitað að kennsluefni á Internetinu og mat lagt á kennslufræðilegt gildi þess. Umræður fara fram á póstlistum, ráðstefnum og/eða spjallrásum eftir því sem talið verður heppilegast hverju sinni. Niðurstöður hópa kynntar vikulega. Samantekt í lok mánaðarins.

Nóvember

Forrit/verkfæri til fjarkennslu og vefsíðugerðar

Notkun ýmissa forrita/verkfæra á Internetinu til fjarkennslu skoðuð og metin. Áfram unnið í hópum eftir námsgreinum og niðurstöðum skilað vikulega. Síðustu tvær vikurnar notaðar til endurmats ásamt heildarniðurstöðu.
FRÍ 1. desember til 15. janúar

Janúar

Vefsíðugerð

Vinna við gerð vefsíðna, sem ætlaðar eru til fjarkennslu, hefst. Gert er ráð fyrir að þátttakendur hafi einhverja reynslu af vefsíðugerð. Unnið verður í hópum sem byggjast á tillögum frá þátttakendum. Vikulega gera hópar grein fyrir stöðunni og skiptast á upplýsingum. Við mat á síðunum verður afstaða tekin til kennslufræðilegs gildis þeirra ásamt útliti.

Febrúar

Vefsíður sem nýtast til fjarkennslu

Áframhaldandi vinna við vefsíður sem nýtast til fjarkennslu þeirra áfanga sem þátttakendur kenna eða hyggjast kenna. Vikuleg skil með tilvísun í vefsíðu þar sem hægt verður að skoða framvindu verksins. Í síðustu viku febrúar verður hópum skipt upp og þátttakendur bera saman reynslu og skiptast á skoðunum ásamt mati á vefsíðunum. Niðurstöður teknar saman í lokin.

Mars

Verklok

Hópar ljúka við vefsíðu til fjarkennslu. Fjallað um höfundarétt í umræðum á ráðstefnu, spjallrás eða með þeim hætti sem þátttakendum líst best á að fenginni reynslu. Að lokum verður kynning á vefsíðum með umræðum og mati. Unnið að sameiginlegri lokaniðurstöðu um hvernig best sé að haga fjarkennslu á framhaldsskólastigi.
Þriðja lota Staðbundin í Endurmenntunarstofnun HÍ, Dunhaga 7 Reykjavík
Dagskrá 26.-28. janúar 2000 Fara efst á síðu.

Miðvikudagur 26. janúar 2000 - hópur 2

Staður

Náman, á neðri hæði í Endurmenntunarstofun HÍ

9:00- 9:45

Farið yfir stöðuna og kynningar á verkefnum skipulagðar

10:00 - 10:45

Kennsluumhverfi á vef – WebCT – Þórunn Óskarsdóttir

11:00 - 11:45

Kynningar á nýjum vefjum þátttakenda eða hugmyndum sem verða unnar í febrúar

11:45 - 13:00

Hádegishlé: Boðið verður upp á léttan hádegisverð í mötuneytinu í Tæknigarði

13:00 – 14:45

Kynningar á nýjum vefjum þátttakenda eða hugmyndum sem verða unnar í febrúar

Kynning á Evrópska skólanetinu – Jóna Pálsdóttir

14:45 – 15:15

Kaffi

15:15 – 16:00

Bandbreidd og tengingar – Sigrún Gunnarsdóttir tölvunarfræðingur hjá rannsóknardeild Landssímans

16:15 – 17:00

Breyttir kennsluhættir í ljósi upplýsingatækni - umræður

Fimmtudagur 27.janúar 2000 - hópur 2 og hópur 3

Staður

Náman, á neðri hæði í Endurmenntunarstofun HÍ

 

9:00 - 9:45

Myndbönd og gagnvirkni á Netinu

Þorbjörg St. Þorsteinsdóttir, Brynhildur Ragnarsdóttir, Sigrún Gunnarsdóttir.

10:00 - 10:45

Fjarkennsluumhverfi á vef; LearningSpace

-Hörður Sigurðarson frá Hugviti hf.

11:00 - 11:45

Umræður

12:00 - 13:00

Hádegishlé: Boðið verður upp á léttan hádegisverð í mötuneytinu í Tæknigarði

Staður

13:00 - 13:30

Oddi, kjallari þar sem fjarfundabúnaðurinn er

Rögnvaldur Ólafsson, ráðgjafi Háskólarektors um fjarkennslu.

Rögnvaldur sér um fjarkennslu Háskóla íslands og segir frá fjarkennslu með notkun fjarfundabúnaðar. Rögnvaldur er dósent við eðlisfræðiskor en hefur unnið við fjarkennsluna, er baráttumaður og brautryðjandi á því sviði.

13:30 - 14:30

Guðjón Ólafsson: um fjarnám á Ísafirði & vefhönnun

14:30-15:00

Kaffi í mötuneyti Tæknigarðs – síðan í Námunni

15:00-16:00

Jóna Pálsdóttir: Námskrárvefur & Menntavefur


Föstudagur 28. janúar 2000 - hópur 3

Staður

Tæknigarður stofa 2

9:00- 9:45

Farið yfir stöðuna og kynningar á verkefnum skipulagðar

10:00 - 10:45

Kennsluumhverfi á vef – WebCT – Þórunn Óskarsdóttir

11:00 - 12:30

Kynningar á nýjum vefjum þátttakenda eða hugmyndum sem verða unnar í febrúar

12:30 - 13:30

Hádegishlé: Boðið verður upp á léttan hádegisverð í mötuneytinu í Tæknigarði

Staður

Neistinn, í kjallara Endurmenntunarstofnunar HÍ

13:30 - 14:45

Kynningar á nýjum vefjum þátttakenda eða hugmyndum sem verða unnar í febrúar

Kynning á Evrópska skólanetinu Jóna Pálsdóttir

15:15 - 16:00

Bandbreidd og tengingar Sigrún Gunnarsdóttir tölvunarfræðingur hjá rannsóknardeild Landssímans

16:15 -17:00

Breyttir kennsluhættir í ljósi upplýsingatækni - umræður

 

 

Fara aftur á forsíðu.Fara aftur á forsíðu.

Íslenska menntanetið. Umsjón: Jóna Pálsdóttir.
Vefur: Ingvar Ágúst Ingvarsson. Uppfært 13. febrúar 2000 af Steinari Huga Sigurðarsyni.