| Upplýsingar um kennara |
| Ásrún Matthíasdóttir (asrun@ismennt.is)
|
|
Ásrún Matthíasdóttir deildarstjóri í tölvufræði í Menntaskólanum
í Kópavogi. Kennir nemendum og kennurum þar að nota tölvur
og sér um tölvumálin skólans. Hún hefur lokið fjarnámi um
kennslufræði og skipulag fjarnáms við Open University. Hún
mun fjalla um gagnvirk próf og kennslufræðilegt gildi þeirra.
Ásrún mun einnig fjarkenna á námskeiðinu.
|
 |
|
| Guðjón
Ólafsson (gaui@mmedia.is)
|
|
Guðjón Ólafsson er kennari við Framhaldsskóla Vestfjarða
og fjarkennari við Verkmenntaskólann á Akureyri. Hann hefur
kennt kennurum fyrir vestan að nota Internetið og fleira tölvutengt.
Einnig kennt vefsíðugerð í HTML á fjarnámskeiðum Íslenka menntanetsins.
Guðjón mun lýsa vefsíðugerð í HTML, fjalla um kennslufræði
vefsíðna í staðbundnu lotunni og síðan halda umfjöllun áfram
í fjarkennslu.
|
 |
|
| Jóna
Pálsdóttir (jonap@ismennt.is) |
| Jóna Pálsdóttir er deildarstjóri upplýsingadeildar
Íslenska menntanetsins. Sér um verkefni sem tengjast notkun
upplýsingatækni í skólum, samskiptaverkefni,
námskeið og gerð kennsluefnis sem byggist á Internetinu með
áherslu á gagnvirka notkun þess til kennslu. Hún er fjarkennari
í íslensku og tjáningu við Verkmenntaskólann á Akureyri. Er
stjórnandi Kidlink-islenska sem er alheims tölvusamskiptaverkefni
fyrir börn og fullorðna. Hefur starfað sem deildarsérfræðingur
í menntamálaráðuneytinu, var áfangastjóri
við Menntaskólann í Kópavogi í 8 ár og er í leyfi frá störfum
sem íslenskukennari þar, hefur starfað sem blaðamaður.
Jóna hefur umsjón með náminu og mun stjórna umræðum vetrarins.
|
 |
|
| Lára
Stefánsdóttir (lara@ismennt.is) |
|
Lára Stefánsdóttir er deildarstjóri tölvudeildar við Menntaskólann
á Akureyri. Hefur árum saman starfað í Kidlink, tölvusamskiptaverkefnum
fyrir börn og fullorðna. Hún hefur kennt og numið á Internetinu
frá 1990. Einnig kennt á námskeiðum um notkun Internetsins
frá upphafi vega og sér nú um fjarnámskeið fyrir kennara á
vegum Menntaskólans á Akureyri í samvinnu við fleiri þróunarskóla.
Lára mun fjalla um aðferðafræði netkennslu og rannsókn á
fjarkennsluaðferðum. Hvernig kennsluaðferðir í fjarnámi á
neti hafa ratað inn í staðbundna kennslu og hugmyndir tengdar
þróun UT í almenna kennslu
|
 |
|
| Sólveig
Jakobsdóttir (soljak@ismennt.is) |
|
Sólveig Jakobsdóttir er lektor í fjarkennslufræðum m. áherslu
á kennslutækni, upplýsingatækni og margmiðlun við KHÍ síðan
í ágúst 1997. Sólveig hefur einnig umsjón með framhaldsnámi
í tölvu- og upplýsingatækni við KHÍ. Hún mun fjalla um rannsóknir
sem tengjast fjarnámi.
|
 |
|
| Tómas
Rasmus (rasmus@ismennt.is) |
|
Tómas Rasmums er deildarstjóri tölvudeildar Menntaskólans
á Laugarvatni. Einnig sér hann um tölvumál í Ljósafossskóla
í Grímsnesi. Undanfarin ár hefur hann kennt á námskeiðum hjá
Íslenska menntanetinu, á staðbundnum námskeiðum og í fjarkennslu,
hann hefur einnig útsett og séð um kennaranámskeið fyrir skólaskrifsofu
Suðurlands. Hann mun kenna fyrstu handtökin við að gera vefsíður
í Word.
|
 |
|
| Þórunn
Óskarsdóttir (thorunn@ismennt.is)
|
|
Þórunn Óskarsdóttir hefur starfað sem fjarkennari við Rafiðnaðarskólann
Viðskipta- og tölvuskólann og Fjölbrautaskólann við Ármúla
þar sem hún er tölvufræðikennari og umsjónarmaður fjarnáms
við skólann. Hún starfar einnig við að leiðbeina kennurum
Háskóla Íslands sem eru að nettengja kennslu og hefja fjarkennslu.
Þórunn mun fjalla um notkun póstlista, vefsíðna, samræðuvefja
og spjalls í fjarkennslu. Hún mun halda áfram í fjarkennslu
í september, einkum með aðferðafræðina við notkun þessara
tækja í kennslu
|
 |