Náms- og kennslufræði
Valnámskeið: Náms- og kennslufræði

3. kennslubréf / viðbótarefni:
Fjölgreindarkenningin: FG könnunarlisti fyrir fullorðna (þýðing: Erla Kristjánsdóttir)



Málgreind

_____ Bækur skipta mig miklu máli.

_____ Ég get heyrt orð innra með mér áður en ég les þau, segi þau eða skrifa þau niður.

_____ Ég fæ meira út úr því að hlusta á útvarp eða mælt mál á snældu en að horfa á sjónvarp eða kvikmyndir.

_____ Ég hef gaman að orðaleikjum eins og krossgátuspili, stafarugli, fimbulfambi og password

_____ Ég hef gaman að því að skemmta mér og öðrum með tungubrjótum, bullrími eða leik að orðum.

_____ Aðrir verða stundum að stoppa mig til að fá útskýringu á merkingu orða sem ég nota í ræðu og riti.

_____ Ég átti auðveldara með að læra íslensku, samfélagsgreinar og kristin fræði í grunnskóla heldur en stærðfræði og náttúruvísindi.

_____ Þegar ég keyri eftir hraðbraut tek ég betur eftir auglýsingaskiltum en landslagi.

_____ Í samræðum mínum við aðra vísa ég oft og iðulega til einhvers sem ég hef lesið eða heyrt.

_____ Ég hef nýlega skrifað texta sem ég var mjög ánægð(ur) með og fékk hrós fyrir frá öðrum.

Aðrir sterkir þættir í málgreind:



Rök- og stærðfræðigreind

_____ Ég á auðvelt með að reikna tölur í huganum.

_____ Stærðfræði og náttúruvísindi voru uppáhaldsgreinarnar mínar í skóla.

_____ Ég hef gaman að leikjum og heilabrjótum sem krefjast rökhugsunar.

_____ Ég hef gaman að því að setja upp „hvað ef...?" tilraunir (t.d. hvað ef ég tvöfalda vatnsmagnið sem ég gef rósarunnunum mínum í hverri viku?)

_____ Hugur minn leitar eftir mynstrum, reglufestu eða röklegri röðun hluta.

_____ Ég hef mikinn áhuga á þróun mála í vísindum.

_____ Ég trúi því að næstum allt eigi sér röklegar skýringar.

_____ Ég hugsa stundum í skýrum, sértækum, orð- og myndlausum hugtökum.

_____ Ég hef gaman að því að finna rökvillur í því sem fólk segir eða gerir, heima of í vinnunni.

_____ Mér líður betur þegar eitthvað hefur verið mælt, flokkað, greint eða magn þess sýnt á einhvern hátt.

Aðrir sterkir þættir í rök og stærðfræðigreind:

Rýmisgreind

_____ Ég sé oft skýrar sjónmyndir þegar ég loka augunum.

_____ Ég er næm(ur) fyrir litum.

_____ Ég nota oft myndavél eða lítið myndbandstæki til að festa á mynd eða taka upp það sem ég sé í kringum mig.

_____ Mér finnst gaman að raðþrautum, völundarhúsum og öðrum sjónrænum þrautum.

_____ Mig dreymir skýra og lifandi drauma á nóttinni.

_____ Ég get yfirleitt ratað á ókunnum stöðum.

_____ Mér finnst gaman að teikna eða krota.

_____ Ég átti betur með að læra rúmfræði en algebru í skóla.

_____ Ég á auðvelt með að sjá fyrir mér hvernig eitthvað liti út ef horft væri á það ofan frá (sjónarhorn fuglsins).

_____ Ég vil heldur lesefni sem er ríkulega myndskreytt.

Aðrir sterkir þættir í rýmisgreind:



Hreyfigreind

_____ Ég tek reglulega þátt í a.m.k. einni íþrótt eða líkamsrækt.

_____ Mér finnst erfitt að sitja lengi kyrr.

_____ Ég hef gaman að því að vinna í höndunum eins og að sauma, vefa, skera út, smíða eða búa til módel.

_____ Ég fæ mínar bestu hugmyndir þegar ég er úti á langri göngu, að skokka eða í annarri líkamsrækt.

_____ Ég vil helst eyða frítíma mínum utandyra.

_____ Ég nota oft hendurnar eða annað líkamsmál þegar ég er að tala við einhvern.

_____ Ég verð að snerta á hlutum til að geta lært betur um þá.

_____ Ég hef gaman að fífldjörfum skemmtitækjum og reynslu sem fær hárin til að rísa.

_____ Ég myndi lýsa sjálfri/sjálfum mér sem manneskju í góðu samræmi, vel samhæfðri.

_____ Ég þarf að þjálfa nýja færni fremur en að lesa um hana í bók eða horfa á myndband sem lýsir henni.

Aðrir sterkir þættir í hreyfigreind:



Tónlistargreind

_____ Ég hef fallega söngrödd.

_____ Ég get sagt til um hvort tónn er falskur.

_____ Ég hlusta mjög mikið á tónlist í útvarpi, af plötum, snældum eða geisladiskum.

_____ Ég leik á hljóðfæri.

_____ Líf mitt yrði fátæklegra ef engin tónlist væri í því.

_____ Ég stend mig stundum að því að ganga eftir götunni og eitthvað lag úr sjónvarpinu eða þ.u.l. sönglar í hausnum á mér.

_____ Ég get auðveldlega haldið takti með einföldu ásláttarhljóðfæri.

_____ Ég kann laglínurnar í mörgum þekktum söngvum og úr söngleikjum.

_____ Ef ég heyri tónverk einu sinni eða tvisvar get ég yfirleitt sungið það nokkuð rétt og hreint.

_____ Ég hamra oft með fingrunum eða raula þegar ég er að vinna, læra eða læra eitthvað nýtt.

Aðrir sterkir þættir í tónlistargreind:


Samskiptagreind

_____ Ég er manneskja sem fólk leitar til eftir ráðum og ráðgjöf í vinnunni eða í nágrenninu.

_____ Ég kýs íþróttir eins og badminton, blak eða hafnarbolta fremur en einstaklings-

íþróttir eins og sund og skokk.

_____ Þegar ég á í vanda er líklegra að ég leiti til annarrar manneskju en reyna að ráða fram úr honum á eigin spýtur.

_____ Ég á þrjá góða vini, í það minnsta.

_____ Ég kýs fremur að stytta mér stundir við spil eins og mattador eða bridds þar sem fleiri spila saman en tölvuleiki og kapal.

_____ Ég nýt þess að kenna annarri manneskju eða hópi það sem ég kann vel.

_____ Ég lít á sjálfa(n) mig sem foringja (eða aðrir kalla mig það).

_____ Mér líður vel innan um margt fólk.

_____ Ég vil gjarnan taka þátt í félagslífi í tengslum við starf mitt, kirkjuna eða hverfið.

_____ Ég myndi fremur eyða kvöldunum í góðu teiti en sitja ein(n) heima.

Aðrir sterkir þættir í samskiptagreind:





Sjálfsþekkingargreind

_____ Ég ver reglulega tíma ein(n) í hugleiðslu, íhugun eða umhugsun um spurningar um lífið og tilveruna.

_____ Ég hef sótt námskeið í ráðgjöf eða námskeið til að efla persónuþroska minn til að kynnast sjálfri/sjálfum mér betur.

_____ Ég er fær um að takast á við bakslög með jákvæðu hugarfari.

_____ Ég hef sérstakt tómstundarstarf eða áhugamál sem ég aðallega held út af fyrir mig.

_____ Ég hef sett mér nokkur mikilvæg markmið sem ég hugsa um reglulega.

_____ Ég hef raunsætt mat á styrkleika mínum og veikleika (stutt af endurgjöf frá öðrum).

_____ Ég myndi fremur kjósa að eyða helgi ein(n) í fjallakofa en á fínum

ferðamannastað með fjölda manns.

_____ Ég tel mig vera viljasterka(n) og sjálfstæða(n) í hugsun.

_____ Ég held dagbók eða minnisbók þar sem ég skrái það sem gerist innra með mér.

_____ Ég er minn eigin húsbóndi eða hef alvarlega hugsað um að hefja sjálfstæðan atvinnurekstur.

Aðrir sterkir þættir í sjálfsþekkingargreind: