|
Norræna ráðherranefndin hefur
ákveðið að efna til
norræns samstarfs til eflingar
frumkvæðisanda og athafnasemi ungmenna
á grunn- og framhaldsskólastigi.
Verkefnið sem ber yfirskriftina
"Entreprenörskap som utdanningsmal for
ungdom", mun standa yfir í fjögur
ár, 1997 - 2000. Ákvörðun um
að gera frumkvöðlauppeldi að
forgangsmáli var tekin að tilmælum
vinnuhóps sem falið var að
móta tillögur um verkefnið.
Haustið 1996 hélt Norræna
Ráðheranefndin
sérfræðiráðstefnu um
viðfangsefnið og tengdist hún
væntanlegu samstarfsverkefni beint og
óbeint. Afrakstur hennar, þ.e.
fyrirlestrar og niðurstöður
vinnuhópa mynda ásamt tillögum
undirbúningshópsins,
megingrundvöll að verkefninu.
Bakgrunnur
verkefnisins er þörfin fyrir að
fleira fólk skapi
atvinnutækifæri og láti til
sín taka í stóru og
smáu til umbóta í
nánasta umhvrfi sínu, fólk
með hæfileika til að sjá
möguleika og tækifæri og
áræði, vilja og kunnáttu
til að nýta þá til að
skapa fjárhagsleg verðmæti
og/eða stuðla að félagslegum og
menningarlegum umbótum.
Þó nokkur vinna hefur þegar
farið fram á hinum
Norðurlöndunum í þessa veru.
|