Ráðstefna í Keflavík 
 

3. vinnuráðstefnan í norræna frumkvöðlaverkefninu var haldin á Hótel Keflavík dagana 16. - 20. apríl 1999 og sóttu hana tæplega 60 manns, þ.e. fulltrúar þátttökuskóla og stýrihópur verkefnisins auk nokkurra utanaðkomandi sérfræðinga.

Meginþema ráðstefnunnar var kennslufræði nýsköpunar- og frumkvöðlanáms. Kynnt voru 5 mismunandi verkefni í þátttökuskólum: Nýsköpunarverkefni í Gnúpverjaskóla, Nemendafyrirtæki o.fl. í Framhaldsskólanum á Húsavík, „Söguaðferðin" ("Story-line") í Ringstabekk skole i Ósló, "Problembasert og prosjektorganisert læring (PBL)" (verkefnamiðað nám, þemanám. samþætting) einnig í Ringstabekk skole svo og dæmi um frumkvöðlamennt sem heildstæða skólastefnu Wendesskolan í Svíþjóð. Einnig kynntu þáttttökuskólar verkefni sín á sýningu sem þeir settu upp á ráðstefnustað.

Á ráðstefnunni unnu tengslahópar að sjálfsmati og áætlanagerð til loka ársins 2000 þegar verkefninu lýkur. Á heimasíðunni: http://www.his.no/ds/norden/ er að finna áætlanir tengslahópa ("handlingsplan") svo og ráðstefnuskýrsluna í heild sinni auk mynda frá ráðstefnunni. Í ráðstefnuskýrsluna á netinu vantar fyrirlestrapunkta (glærur) úr tveimur erindum, þ.e. erindi Ketils B. Magnússonar um siðfræði frumkvöðlamenntar í ljósi reynslu af starfsemi Hins hússins í Reykjavík og erindi Anniku Løfgren um frumkvöðlastarf í Wendesskolan í Svíþjóð. Hægt er að nálgast ljósrit af þessum punktum hjá Kristrúnu Ísaksdóttur í menntamálaráðuneytinu (rafpóstur: kristrun.isaksdottir@mrn.stjr.is).

 Til baka