|
Markmið
    
|
- Samfélagslegt markmið
verkefnisins er að nemendur:
- -verði virkir og ábyrgir
þátttakendur í mótun
og nýsköpun í nánasta
umhverfi sínu á sviði
atvinnu-, félags- og
menningarmála til gagns fyrir
sjálfa sig og heildina.
-
- Einstaklingsbundin markmið miða
að því að
nemandinn:
- -þroski með sér eiginleika
frumkvöðuls í víðustu
merkingu þess orðs, svo sem
frumkvæði og
áræðni,
úrræða- og
útsjónarsemi, skapandi hugsun,
sjálfstæði og
ákveðni,
ábyrgðarkennd,
bjartsýni og
jákvæðni, sjálfstraust
og sveigjanleika
- -læri að auðkenna
tækifæri og kosti til umbóta
og nýsköpunar
- -öðlist hæfni og vilja til
að nýta tækifæri og koma
hugmyndum í framkvæmd í
formi raunhæfra verkefna
þar sem reynir á samskipti,
umburðarlyndi og þrautseigju
- -átti sig á afleiðingum
eigin ákvarðana og gjörða og
sé tilbúinn að taka
ábyrgð á þeim
-
- Markmið skólastefnu og
skólstarfs er þau að
skólinn:
- -móti heildarstefnu í
stjórnunar-, kennslu- og
samskiptaháttum sem miðar markvisst
að því að efla
frumkvöðlaanda og athafnasemi
nemenda.
-
- Skólinn:
- -leggi áherslu á
viðhorfamarkmið ekki síður en
þekkingar- og færnimarkmið
- -leggi í vaxandi mæli
áherslu á heildstætt
nám með raunhæfum,
þverfaglegum viðfangsefnum
(PBL = problembaseret,projektorganiseret
læring), þar sem byggt er á
samþættingu
fræðilegra og hagnýtra
námsþátta og reynslu
nemendanna sjálfra, en dragi að
sama skapi úr hefðbundinni
kennslu innan vébanda einstakra
námsgreina
- -hvetji nemendur til að skapa og
þróa nýja þekkingu,
ali þá upp í
því hlutverki að bera
ábyrgð á eigin
námi og samstarfsverkefnum, skilgreina
viðfangsefni, gera áætlanir,
afla upplýsinga og varða
leiðir að lausnum - en kennarinn sinni
ráðgjöf og handleiðslu
fremur en beinni miðlun
- -opni dyr sínar út í
samfélagið með því
að byggja upp samstarf og tengslanet við
aðrar stofnanir, fyrirtæki
og félagasamtök til að skapa
gagnkvæman skilning og
aðstæður til að nemendur
og skólinn sem slíkur geti
tekið virkan þátt í
eflingu grenndarinnar.
-
- Til
baka
|
|