Þrautir 98-99
5. sending
Hópur C
1. Dúkurinn dýri 

Dabbi og Binna reka dúklagningarfyrirtæki. Þau keyptu inn forláta dúk en höfðu skorið úr honum á ýmsa vegu vegna fyrri verkefna. Nú kom beiðni frá Gullnu geisladiskunum um að dúkleggja ferningslaga anddyri hjá þeim með þessum dúk eins og gert hafði verið við önnur gólf þar. „Æ“, sagði Binna, „við getum ekki notað þennan afgang.“.  „Bíddu nú hæg“, sagði Dabbi, „ég held að við þurfum ekki að skera nema tvo skurði til þess að búa til ferning sem passar.“ Er það satt hjá honum? Hvernig getur hann sannfært Binnu? Hún er svolítið kröfuhörð um rök!



2. Skólaballið 

„Niðurstaða er komin!“ tilkynnti Finnur fréttaþulur í skólaútvarpinu. „Nú vitum við loks hverjar vinsældir hljómsveitanna hér í skólanum eru.“ 

22 líkar við Hellisbúana
25 líkar við Kafbátana
39 líkar við Grænu greyin
  9 líkar við Hellisbúana og Kafbátana
17 líkar við Hellisbúana og Grænu greyin
20 líkar við Kafbátana og Grænu greyin
  6 líkar við allar hljómsveitirnar þrjár
  4 vilja ekki sjá neina þeirra 

„Hvaða rugl er þetta í þér?“ sagði Gulla Galop sem sat við hliðina á honum. „Það voru ekki nærri svona margir í úrtakinu sem ég valdi.“ „Þetta er nú samt satt“ sagði Finnur. „Þú getur meira að segja fundið út frá þessu hve margir voru í úrtakinu!“ Og svo brosti hann og blikkaði hana. 



3. Hippocrates frá Chios 

„Oh, hvað það er margt á vefnum“ tautaði María. „Hér er ég komin í sögu af Hippocrates frá Chios sem var uppi mörgum öldum fyrir fæðingu Krists. Hvað ætli hann hafi verið sanna á þessari skýringamynd? Ætli hann hafi verið sýna fram á stærð einhverra hlutanna. Hvernig gæti maður nú t.d. fundið hvað þessi hálfmáni er stór? Þetta er svona Hippokratesar hálfmáni. Þetta er nú aldeilis magnað.“ Og þannig hélt hún áfram að tauta fullkomlega niðursokkin í efnið á vefnum. Getið þið séð hvað María var að uppgötva?

Myndin sem María var að skoða er hálfhringur með hálfum ferningi innan í. Út frá annarri hlið ferningsins er teiknaður minni hálfhringur og þar kemur hálfmáninn fram.



4. Stærðfræðingar til forna 

Leiðangur fornleifafræðinga var á ferðinni í Perú. Þeir komu að helli og innan á steininum sem var fyrir opinu var að finna dularfullar tölur. Nú vissu fornleifafræðingarnir að frumbyggjar á þessum slóðum höfðu verið ágætir stærðfræðingar þannig að þeir fóru að skoða hvaða samband gæti verið milli talnanna. En verst var að sums staðar vantaði tölur. Yfir þessu var legið á kvöldin þar til Grani glöggi fékk hugljómun. „Jaaaaaá“ heyrðist frá honum. „Það passar, það passar alveg.“ Hvað passaði? Hvaða mynstur sá hann og hvaða tölur voru afmáðar? Til þess að auðvelda umræður höfum við sett bókstafi þar sem afmáðu tölurnar stóðu áður.
 
7 5 12 3 (A) 8 4 (B) (C)
5 4 9 1 8 (D) (E) 2 4
2 1 3 2 7 (F) 1 (G) 2
10 4 (H) 2 (I) 15 3 14 8



5. Mörgæsagleði 

Mörgæsirnar Dollý, Mollý og Pollý fóru í skemmtigarðinn á Norðurheimskautinu. Nýja skemmtitækið, Þeytivindan, var spennandi en hún tók ekki nema 55 kg í einu. Nú voru góð ráð dýr því að þær vildu fara saman í Þeytivinduna. Og auðvitað vita Mörgæsir ekki hvað þær eru þungar. Við hliðina á innganginum var vog en hún virkaði ekki nema tveir stigju á hana saman. Mælingarnar sýndu eftirfarandi niðurstöðu: 

Dollý og Mollý vega 45 kg.
Dollý og Pollý vega 34 kg.
Mollý og Pollý vega 26 kg. 

Geta þær látið drauminn rætast og farið allar þrjár saman í Þeytivinduna?