Árstíðabundnar þjóðsögur.

Mynd: Arndís Bára Ingimarsdóttir
8. G.K. Barnaskóla Vestmannaeyja

Sumar þjóðsögur okkar eru tengdar sérstökum árstíma og þeim verkum sem unnin voru þá. Má þar nefna sauðburð, vetrarvertíðir sjómanna o.fl.

Í þessum hópi frásagna skipa þó stærstan sess, frásögur tengdar jólum og áramótum.

Öll þekkjum við sögurnar um heimsóknir álfa, bæði á jóla- og nýársnótt.

Finndu þjóðsögur sem tengjast einhverri sérstakri árstíð eða verkum sem unnin voru á sérstökum árstíma og segðu okkur hinum frá.Þú mátt annaðhvort skrifa þær beint upp ú bók, eða endursegja.Í báðum tilfellum skaltu láta fylgja með úr hvaða bók sagan er tekin og hver er höfundur (frásagnarmaður) ef það kemur fram. Gaman væri líka að fá mynd með.

Lestu þjóðsögu tengda sérstakri árstíð. Ef þú ert ekki orðin(n) vel læs, máttu alveg biðja kennarann þinn, eða einhvern heima, að lesa söguna fyrir þig
Teiknaðu svo mynd út frá sögunni, annaðhvort í einhverju teikniforriti, eða bara á blað og sendu okkur.
Leiðbeiningar um myndvinnslu

Þú getur annaðhvort farið á bókasafnið og lesið þar um þjóðsögur í þessum flokki eða skoðað krækjusíðuna og fundið þar eitthvað í þessum flokki.

Mundu að að skrá þig. áður en þú byrjar að taka þátt.

Hilda og Eygló
Forsíða þjóðsöguverkefnis

Verkefni unnið af Eygló Björnsdóttur og Hildu Torfadóttur
Síðast uppfært 2. febrúar 1999

Einkaréttur © 1999 Kidlink. Allur réttur áskilinn.

Til baka