Ljóð og kvæði

Þjóðtrú okkar birtist ekki bara sem sögur, heldur líka sem kvæði og ljóð. Hver kannast t.d ekki við kvæði sem byrjar svona:

    "Stóð ég úti í tunglsljósi
    stóð ég út við skóg"

Nú eða þá "Grýlukvæði" og ýmis kvæði um jólasveinana, álfa og fleira gott fólk.

  Finndu ljóð og kvæði sem tengjast þessu viðfangsefni og sendu okkur. Mundu að gaman væri að fá mynd með ljóðinu.

Ef þú treystir þér ekki til að skrifa upp ljóð, þá gætir þú kannski bara teiknað mynd við eitthvert ljóð sem þú lest eða einhver les fyrir þig, og sent okkur.

Kannski geturðu valið eitthvert ljóð sem birtist hér á vefnum og ekki er nein mynd við og myndskreytt það.

  Ekki væri svo verra ef þú gætir samið sjálf(ur) ljóð um álfa, jólasveina, huldufólk eða annað og sent okkur.

Þú getur annaðhvort farið á bókasafnið og fundið þar bækur með ljóðum og kvæðum tengdum þjóðtrúnni eða skoðað krækjusíðuna Þar finnur þú örugglega einhver ljóð og kvæði.

Mundu bara að skrá þig áður en þú byrjar að taka þátt.

Til baka
    Forsíða þjóðsöguverkefnis

Verkefni unnið af Eygló Björnsdóttur og Hildu Torfadóttur
Síðast uppfært 2. febrúar 1999

Einkaréttur © 1999 Kidlink. Allur réttur áskilinn.