Nútíma-þjóðsögur
Mynd: Guðrún Jónína Gunnlaugsdóttir
8. G.K. Barnaskóla Vestmannaeyja
Nú þegar þú ert búin(n) að kynna þér og lesa um íslenskar þjóðsögur, væri þá ekki gaman að spreyta sig á að búa til þjóðsögu eða ævintýri sjálf(ur) ?
Ef þú skoðar þjóðsögurnar sem krakkarnir í Barnaskóla Vestmannaeyja bjuggu til , sérðu að þetta er ekki svo erfitt.
Nú er bara að bretta upp ermarnar og hefjast handa. Þegar þú ert búin(n) að búa til þjóðsögu þá sendu okkur hana og við komum henni á vefinn fyrir þig. Gaman væri auðvitað að fá mynd með.
Skoðið heimatilbúnu þjóðsögurnar sem birtast hér á vefnum. Ef þú ert ekki vel læs getur þú beðið einhvern fullorðinn að lesa fyrir þig. Ef þú sérð að einhvers staðar vantar mynd við sögurnar þá getur þú bjargað því. Teiknaðu mynd út frá sögunni,
annað hvort í einhverju teikniforriti, eða bara á blað og sendu okkur.
Leiðbeiningar um myndvinnslu
Mundu bara að áður en þú byrjar að taka þátt, þarftu fyrst að skrá þig.
Hilda og Eygló
Til baka
Forsíða þjóðsöguverkefnis
Verkefni unnið af Eygló
Björnsdóttur og Hildu
Torfadóttur
Síðast uppfært 2. febrúar 1999
Einkaréttur © 1999 Kidlink. Allur réttur áskilinn. |