Lestrarhesturinn

Tímabil: Frá 1. október 2002 til loka maí 2003

Tilgangur:

Að opna augu barna og unglinga fyrir því sem gerir bækur eftirsóknarverðar og skemmtilegar og fá þau til þess að deila þeirri upplifun sinni með bekkjarfélögum og öðrum með því að nota tölvupóst og Veraldarvefinn. Að börn og unglingar fái viðbrögð frá öðrum við skrifum sínum og skiptist á skoðunum með hjálp tölvupósts og/eða annarra samskipta á vef. Að auka bóklestur  barna og unglinga með því að gefa þeim tækifæri til að kynnast nýjum rithöfundum og bókmenntagreinum.

Markmið:

  •  Að læra að greina og fjalla um einkenni og uppbyggingu bókar.
  • Að tjá sig og svara bréfum og athugasemdum annarra á skapandi og sannfærandi hátt.
  • Að nota tölvupóst og önnur samskiptaverkfæri á vef og geta með þeim hætti svarað bréfum og athugasemdum frá öðrum.
  • Að kynnast bókum nýrra höfunda og bókum sem aðrir mæla með.

Áhersluatriði í kennslu:

  • Að nemendur fjalli á skapandi hátt eftir aldri og þroska um bækur sem þau hafa lesið. 
  • Að skapa umræðu um hvað það er sem gerir umfjöllun um bók góða og eftir hverju þau eigi að taka við lesturinn.
  • Þátttakendur skulu hvattir til að vinna í byrjun tvö og tvö saman eða í litlum hópum  þar til þau hafa öðlast nægilegt sjálfstraust til þess að skrifa á eigin spýtur.
     

Umsagnirnar:

Í hverri umsögn verður að koma fram nafn bókar og rithöfundar. Í umsögninni eiga einnig að koma fram viðbrögð lesandans við lestrinum og innihaldi bókarinnar sem og hvetjandi skilaboð til lesanda. Ábendingar um það, hvaða aldursflokkur og manngerð gæti haft ánægju af lestri hennar eru einnig sjálfsagðar. Börnin eiga að lesa nokkrar umsagnanna og láta í ljós álit sitt við höfunda þeirra í tölvupósti eða með öðrum samskiptum á vef . Þátttakendur eiga að senda inn fullgerðar umsagnir fyrir páska svo aðrir krakkar hafi tíma til þess að lesa þær bækur, sem mælt er með, gera athugasemdir við þær og svara athugasemdum annarra. 
     

Hvernig tekur maður þátt í þessu verkefni:

Kennarar gerast áskrifendur að póstlistanum kidleader-islenska. Þannig komast þeir í samband við aðra kennara sem eru að taka þátt í Kidlink.

Börnin þurfa að svara spurningunum fjórum til að fá að vera með í Kidlink.

Skrá þarf þátttöku í verkefnið, svo stjórnandinn hafi betri yfirsýn yfir það hverjir eru með.

Þátttakendur gerast áskrifendur að kidproj-islenska póstlistanum, því þar fara samskipti barnanna í verkefninu fram. Gott er að kennarinn gerist áskrifandi að honum líka.

Upplýsingar um það hvernig maður sendir bréf inn á póstlista er að finna hér.

     

Hér fyrir neðan eru  atriði sem hægt er að hafa til hliðsjónar við umfjöllun um bækur:

Sögu-og myndabækur:

  • Af hverju var þessi bók valin
  • Hvar gerist sagan?
  • Hvaða hluti hennar er skemmtilegastur og hvers vegna?
  • Er persónu- og staðarlýsingar trúverðugar?
  • Er atburðarásin í sögunni hröð?
  • Fangar frásögnin athygli þína og vekur hugmyndaflug?
  • Var eitthvað í atburðarás sögunnar sem kom þér á óvart?
  • Benda á áhugaverð og spennandi atriði í sögunni án þess að láta allt uppi.
  • Er málfarið í bókinni torskilið eða auðskiljanlegt?
  • Er bókin myndskreytt? Ef svo er hversu skemmtilegar eru myndskreytingarnar?
  • Hefurðu áhuga á að lesa meira eftir sama höfund eða bók úr sama bókaflokki?
  • Hvernig myndir þú lýsa þessari bók fyrir besta vini þínum ef þú vildir hvetja hann til að lesa hana?

Fyrir fræðibækur:

  • Hvers vegna valdir þú þessa bók og getur þú mælt með henni við aðra?
  • Með hvaða hætti eru upplýsingarnar í bókinni settar fram?
  • Er auðvelt að finna þær og fylgja þeim eftir?
  • Er bókin auðlesin og málfar skiljanlegt börnum og unglingum?
  • Hjálpar þessi bók þér að fræðast um það efni sem þú leitaðir að? Ef svo er, á hvern hátt? 
  • Hefur þessi bók orðið þér hvatning til þess að kynna þér betur það málefni sem fjallað var um eða opnað augu þín fyrir einhverju sem þú þekktir ekki áður?
  • Var bókin þér hvatning til að finna og lesa fleiri bækur um sama efni?


Ef þú þarft nánari upplýsingar, sendu þá bréf inn á kidleader-islenska póstlistann eða sendu tölvupóst til Hildu Torfadóttur og/eða Guðbjargar Guðmundsdóttur stjórnenda kidproj-islenska.



Einkaréttur © 1999 Kidlink. Allur réttur áskilinn.
Síðast uppfært 5. febrúar 2001