Ferðalag Finna fiðrildis
er verkefni í gegnum Kidlink á Íslandi. Verkefnið
fékk styrk úr Þróunarsjóði grunnskólanna
fyrir veturinn 2001-2002.
Tuskudýrið Finni
ferðast á milli skóla og heimsækir nemendur í
4.-5.bekk. Þegar Finni er í heimsókn vinna gestgjafar
að verkefni um heimabyggð sína og setja afrakstur verkefnanna
á netið sem er síðan tengt frá heimasíðu
Finna.
Nemendur vinna einnig að
dagbók meðan á heimsókninni stendur og birta hana
á netinu þar sem aðrir hafa aðgang að.
Í þriðja
lagi hafa nemendur samskipti á Kidproj-islenska, sem er póstvefur
sem einungis þátttakendur hafa aðgang að. Á
meðan eru nemendur annars staðar á landinu að fylgjast
með dvölinni í gegnum netið, læra um þann
stað sem Finni er á. Nemendur tveggja skóla hafa siðan
samskipti og spyrja hvort annað spurninga um byggðina og líf
þeirra þar.