Skráning fyrir þátttakendur í verkefni
Finna fiðrildis

Forsíða Einhverjar spurningar?

 
Þeir sem hafa áhuga fyrir að taka þátt í verkefninu verða að byrja á því að skrá þátttöku. Að skráningu lokinni verður haft samband við viðkomandi um hvenær búast má við að Finni komi í 
heimsókn til þeirra og annað varðandi þátttökuna.  
Þegar búið er að samþykkja þátttökubeiðnina verða kennarar og nemendur að skrá sig í Kidlink, hafi þeir ekki þegar gert það.  
Sjá hér að neðan:
 
Kennari: 
Kennari verður að skrá sig á KIDLEADER sem er póstlisti fyrir kennara og stjórnendur. Þar fara fram ýmsar umræður um það er að gerast í Kidlink á Íslandi. Kennarar eru vinsamlegast beðnir um að senda síðan smá kynningu á sér inn og eflaust fær sá hinn sami hlýjar móttökur. 

Einnig verður kennarinn að skrá sig á Kidproj-islenska listann. Þar fara fram umræður um það sem tilheyrir verkefnunum í Kidlink sérstaklega.

Nemendur: 
Nemendur verða að svara fjórum spurningum um sjálfan sig áður en gengið er til liðs við Kidlink. Þessar spurningar eru í gangi í öllum Kidlink-löndum. Þó þær séu á ensku eins og er, á að svara þeim á íslensku. 

Allir sem taka þátt í verkefninu verða að skrá sig á Kidproj-islenska póstlistann., því þar fara fram öll samskipti í verkefninu.  
 Nóg er að kennarinn skrái sig á sínu netfangi,en ef hann notar sérstakt skólanetfang eða nemendanetfang til samskiptanna, þá þarf að skrá sig á listann frá því netfangi einnig.  
Þeim nemendum sem hafa sitt eigið netfang er 
heimilt að skrá sig frá því. 
 

 

Verkefni unnið af Guðbjörgu Ingu Guðmundsdóttur
Síðast uppfært 13/01 2002
Einkaréttur © 2000 Kidlink. Allur réttur áskilinn.