| Skólinn minn Verkefnið hefst 1. sept. 2001 og lýkur 15.maí 2002 Stjórnandi verkefnis: Ásta Kristjana astajana@ismennt.is |
||
| Úr aðalnámskrá | Lýsing á verkefni:![]() 1.Bekkjarmynd: Hver bekkur útbýr eina bekkjarsíðu með hópmynd af bekknum. 2.Skólinn minn (sept.-des.) Nemendur teikna skólahúsið í teikniforriti t.d. Paint og skrifa sameiginlegan texta um skólann sinn. 3.Starfsmenn skólans(des.-feb.) Nemendur teikna myndir af starfsfólki skólans sem eru skannaðar inn. 4.Skólaathöfn -Hvað gerum við í skólanum (feb-maí) Ljósmyndir skannaðar inn af nemendum í vinnu. Sameiginleg- eða einstaklingsfrásögn af athöfnum. |
|
| Þátttaka: Kennari eða barn sem hefur áhuga á að taka þátt í verkefninu hafi samband við stjórnanda með tölvupósti. Börn sem ætla að taka þátt í verkefnum á vegum Kidlink verða að svara fjórum spurningum. Nemendur svara spurningunum fjórum og senda inn í síðasta lagi í nóvember. Ath. spurningunum má svara myndrænt og/eða senda barnið heim og biðja foreldra að hjálpa barninu að svara þeim Fyrir þá sem vilja vinna meira með spurningarnar fjórar má benda á "Hver er ég verkefnið" en fyrsti hluti þess fjallar einmitt um spurningarnar fjórar. Bréfasamskiptin fara fram á Kidproj-islenska listanum og verður kennari að gerast áskrifandi að honum frá því netfangi sem hann notar með nemendum. Bréfasamskipti geta hafist fljótlega eftir að verkefnið er komið af stað á póstlista Kidproj-islenska. |
||
|
Síðast uppfært 7.október 2001 af Ástu Kristjönu kennara við
Grunnskólann að Hólum. |
||