Þjóðtrú og þjóðsögur


Ýmsar gagnlegar krækjur

 

Mynd: Gunnar Örn Sigurbjörnsson 
Barnaskóla Vestmannaeyja 

[ ViðfangsefniNámskrá  | Gagnlegar krækjur | Til krakkanna  | Til kennarans ]


Salvör Gissurardóttir lektor í upplýsingatækni við Kennaraháskóla íslands hefur sett saman vef um álfa. Þar má finna ýmsar álfasögur, álfaljóð og sitthvað fleira skemmtilegt. Salvör hefur líka sett saman vef um Grýlu og jólasveinana sem gaman er að skoða.


Hallfríður Sverrisdóttir á Sauðárkróki hefur unnið skemmtilegan vef um þjóðsögur. Þar eru m.a.:

álfasögur

galdramannasögur

draugasögur

náttúrusögur

tröllasögur

Í gagnasafni Hallfríðar eru einnig gagnlegar krækjur og upplýsingar um bækur og gögn sem gott er að hafa í kennslustofunni þegar unnið er með þjóðsögur. Rúsínan í pylsuendanum hennar Hallfríðar er, að með hverjum flokki sagna er lítið próf til að kanna hvað við vitum um þjóðsögurnar.


Netútgáfan er með þjóðsögur á vef sínum:

Álfar og huldufólk

Draugar

Galdrar 

Tröll 

Úr efra og neðra 

Úr sjó og vötnum

Útilegumenn 

Viðburðasögur

Ævintýri

Ýmislegt

Þar eru einnig þjóðsögur í stafrófsröð.


Til er vefur um þjóðsögur tengdar byggðinni í uppsveitum Árnessýslu. Líttu á hann.

Skrípi, úr gagnasmiðju Kennaraháskóla Íslands, er vefur sem Torfi Hjartarson tók saman m.a. um sögu söfnunar á þjóðsögum til þessa dags.

Á vefsíðu um þjóðsögur í Þingeyjarsýslum eru ýmsar krækjur í þjóðsögur í heimabyggð.

 


Krakkar í Barnaskóla Vestmannaeyja hafa samið nútímaþjóðsögur og ævintýri eftir að hafa lesið og lært um þjóðsögur. Þú getur litið á þær þér til gamans. Þau hafa líka endursagt nokkrar íslenskar þjóðsögur og teiknað myndir með. Kannski hefur þú líka gaman af að skoða þær.


[ Forsíða | Þátttakendur | Afrakstur verkefnisins ]


Verkefni samið af Eygló Björnsdóttur og Hildu Torfadóttur 
Síðast uppfært 20. nóvember 2001
Einkaréttur © 1999 Kidlink. Allur réttur áskilinn.