Hvað heiti ég fullu nafni? Hversu gamall/gömul er ég? Er ég drengur eða stúlka? Hvar á ég heima (bær, land)? Hvað heitir skólinn minn? hver eru áhugamál, draumar og áhyggjur? Hvað annað vilt þú að aðrir viti um þig?
Segðu frá draumum þínum um hvað þú vilt verða þegar þú verður stór, hvað þú vilt vinna við, hvað þú vilt læra og annað sem þú vilt segja frá.
Hvernig vilt þú bæta það hvernig við erum hvert við annað og hvernig við göngum um í heimi sem við deilum saman?
Hvað getur þú gert núna til að reyna að
ná fram því sem þig dreymir um til að bæta
heiminn?
Til að fá frekari upplýsingar um hvernig þú skilar inn svörunum líttu á RESPONSE síðurnar. Þar er miðstöð fyrir svör allra barna sem svara spurningunum fjórum í Kidlink.
Taktu eftir aðeins nafnið þitt, aldur, kyn, staður, skóli og land verða að vera á ensku. Annað getur verið á því tungumáli sem þú velur. Þetta á einungis við þegar svarað er með tölvupósti, ef svarað er beint á vef (sjá ofar) þá þarf ekki að velta þessu fyrir sér. Ástæðan er sú að Kidlink vill gjarnan vinna tölfræðilegar upplýsingar úr svörunum.
Svörin þín við spurningunum fjórum munu koma fram á RESPONSE póstlistanum
Uppfært 17. janúar 1998, Lára Stefánsdóttir, lara@ismennt.is
Copyright © 1997 Kidlink . Öll réttindi áskilin.