
Danska ævintýraskáldið H.C.Andersen samdi mörg falleg, skemmtileg og heillandi ævintýri. Ævintýrin hans hafa verið börnum á öllum aldri til mikillar ánægju allt frá því þau komu fyrst fyrir sjónir almenninngs á fyrri hluta nítjándu aldar.
20. febrúar - 15. mars 1999 var farandsýning á lífi og list H.C.Andersen í Norræna húsinu í Reykjavík. Í tengslum við þá sýningu varð til þetta verkefni. Það var unnið í samráði við samvinnuhóp um H.C. Andersen í skólum
Til þess að allir krakkar sem hafa gaman af því að lesa ævintýrin hans hafi tækifæri til þess að vinna verkefni út frá þeim ætlum við á Kidproj á íslensku að bjóða uppá samstarfsverkefni um H.C.Andersen.Verkefnið er fyrir alla krakka.
Ert þú í þeim hópi?Verkefnið hefst þegar fyrsti skólinn hefur skráð sig.
Mundu að áður en þú getur byrjað að taka þátt í verkefninu verður þú að svara Kidlink-spurningunum fjórum
Mundu líka að þú þarft að skrá þig til þátttöku
Þegar þú ert búin(n) að vinna verkefni þarftu að koma því til okkar.
Allur skrifaður texti fer inn á Kidproj-islenska, en vefsíður og myndir beint til okkar.
Skelltu þér í hópinn og vertu með í ævintýraverkefninu.
Verkefni unnið af Eygló Björnsdóttur og Hildu Torfadóttur