Hvalir og menn



Hvalir og menn

Hér fyrir nešan koma tillögur aš żmsum verkefnum sem žś getur vališ. Žś žarft aš sjįlfsögšu ekki aš velja allt, heldur einungis žaš sem žś hefur įhuga fyrir.

Ašalatrišiš er aš vera meš.

1. Ęttleiddu hval
2. Skrifašu um hvali
3. Hvalaskošun
4. Hvalveišar
5. Fręgir hvalir


Ættleiddu hval:



Skrifaðu um hvali:
  • Finndu þér einhvern til þess að skrifast á við um hvali.
  • Skrifaðu ljóð um hval eða hvali. Hvernig ætli það sé að vera hvalur? Hvernig liði þér, ef þú sæir hval? Hvernig liði þér ef þú værir sjávardýr og sæir hval?
  • Skrifaðu smásögu um hval sem aðalpersónu sögunnar eða sögu þar sem hvalur verður á vegi fólksins í sögunni.
  • Taktu þátt í að skrifa samvinnusögu (ping-pong story) um hval. Samvinnusaga er saga sem er samin þannig að  fyrst skrifar einstaklingur eða bekkur upphaf á sögu, aðrir einstaklingar og/eða bekkir halda svo áfram með söguna.Að lokum verður sagan kannski allt öðru vísi en þú áttir von á. Það er líka hægt að semja sögu (hypertext), sem breytist eftir því hvernig þú lest söguna og  hvaða tengingar þú velur.
  • Skrifaðu ritgerð um hvali, sem byggð er á upplýsingum sem þú hefur fundið í hvalaverkefninu sjálfu hjá Kidlink eða annars staðar.
  • Hvernig hefur samband manna og hvala verið? Kanntu þjóðsögur eða aðrar frásagnir af tengslum manna og hvala?


Hvalaskoðun
  • Ef þú hefur farið í hvalaskoðunarferð skaltu segja þeim sem taka þátt í verkefninu frá henni. Sáuð þið hvali? Hvers konar hvali? Var kalt? Varðstu sjóveik(ur)? Hvernig sá hvalaskoðunarfyrirtækið um að þú sæir hvali?
  • Hvaðan í heiminum lögðuð þið frá bryggju? Eru hvalir algengir á þeim slóðum? Finnst þér að  fólk eigi að fara í hvalaskoðun? Hvernig sá hvalaskoðunarfyrirtækið til þess að þú sæir hvali í  ferðinni? Getur hvalaskoðun verið hættuleg?
  • Búðu til heimsíðu fyrir þitt eigið hvalaskoðunarfyrirtæki. Hvernig ferðir myndir þú bjóða upp á?  Hvað myndu viðskiptavinir þínir sjá?


Hvalveiðar
  • Hverjir stunda hvalveiðar? Af hverju gera þeir það? Finnst þér að það eigi að leyfa hvalveiðar? Af hverju? Af hverju ekki? Hvað er gert við  hvalkjötið? Hvernig er það meðhöndlað áður en það er selt?
  • Sumir segja að hvalir éti of mikið af fiski og því fækki fiskunum í sjónum. Finnst þér rétt að friða sumar tegundir sjávardýra en ekki önnur?
  • Sumum þykir hvalkjöt gott. Þekkir þú fólk sem hefur borðað hvalkjöt? Fannst þeim það gott? Langar þig til að smakka það? Leitaðu að uppskrifum af því hvernig á að matreiða hvalkjöt.
  • Sumir hvalir drepast þegar sjómenn eru að veiðum. Hvað verður um þá hvali?
  • Finnst þér hvalir ólíkir öðrum skepnum sem menn nýta kjötið af?
  • Stundum hafa hvalir verið veiddir fyrir sædýrasöfn. Finnst þér það réttlætanlegt? Hvernig heldur þú að hvali líði í búri? Skiptir máli fyrir börn og unglinga að hafa tækifæri til að sjá hvali í sædýrasöfnum?
 

Frægir hvalir

Keikó er háhyrningur sem var fangaður við austurströnd Íslands árið  1979 og fluttur til Bandaríkjanna þar sem hann hefur verið allar götur síðan. Nú er ætlunin að flytja Keiko til Vestmannaeyja og gefa honum frelsi.
 
 

Til baka

Einkaréttur © 1998 Kidlink. Allur réttur įskilinn.