| Sessa á Flateyri:
26.janúar 2000:
Hjá Jónínu Rut, Goðatúni
6.
Þegar skólinn var búinn fór
Sessa að sofa. Svo fórum við að hitta vinkonu mína.Við
lékum okkur í Play-station. Að því loknu
fórum við á fótboltaæfingu. Sessa skoraði
eitt mark. Ég klæddi Sessu í peysu svo að henni
yrði ekki kalt. Eftir matinn horfðum við á sjónvarpið
og kubbuðum svo fórum við að sofa.
27.janúar 2000
Hjá Jovan Rey, Brimnesvegi 20.
Ég var spenntur að fá Sessu.
Þegar ég fékk hana fór ég með hana
í íþróttahúsið. Hún horfði
á mig allan tímann. Hún fór ekki í sturtu.
Ég fór í smíði en hún var í
tölvu. Svo fór ég heim. Ég fór í
píanó með hana. Hún hjálpaði mér
að læra. Í kvöld borðuðum við og svo
tók mamma mynd af mér og Sessu. Svo klukkan 9:00 fórum
við að sofa.
28.janúar 2000
Hjá Óttari, Drafnagötu
sjö.
Ég og Sessa fengum okkur að borða,
svo horfðum við á sjónvarpið og á meðan
ég fór á fótboltaæfingu fór hún
í tölvuna. Svo þegar ég fór til Sigga þá
tók ég hana með mér og hún datt niður
af borðinu hjá Sigga af því að Alien versus
Predator var svo ógeðslegur og svo
fórum við að sofa.
31.janúar 2000
Hjá Einari.
Þegar Sessa var hjá mér fórum
við í tölvuna og svo á sundæfingu. Hún
synti 700 ferðir en ég 900.000.000 ferðir. Svo fengum við
okkur spaghetti. Hún fór að sofa en ég til Sigga
í tölvuna.
1.febrúar 2000
Hjá Sigga.
Einu sinni var Sessa hjá mér og
hundurinn minn var ástfanginn af Sessu kjúklingi og elti
hana um allt hús. Henn þótti "Sega mega,PC play-station
Nintendo" skemmtilegastur.
2. febrúar 2000
Hjá Jóhanni Inga
Sessa var hjá mér, Jóhanni,
og við fórum á fótboltæfingu. Sessa horfði
á svo þegar ég fór með BB þá
fór hún að sofa.
3.febrúar 2000
Hjá Hrefnu Hrund Ólafsdóttur.
Í dag er Sessa hjá mér.
Hún fór með mér til Jónínu. Við
lærðum. Svo fórum við heim og fengum okkur að
borða. Svo fórum við að sofa.
3.-4. febrúar 2000
Hjá Maríu Rut Kristinsdóttur,
Ólafstúni 4.
Þá var ég að passa litla
bróður minn, hann er 11 mánaða. Þannig að
ég gat ekki verið með Sessu. En hún horfði á
sjónvarpið með Júlíu. Hún er 5 ára
og er systir mín.
6.febrúar 2000
Hjá Margréti Öldu.
Núna er Sessa hjá mér. Við
fórum heim að borða. Svo fórum ég, Jói
og Sessa að búa til snjókarl. Við fórum
líka á fótboltaæfingu og svo fórum við
að borða kvöldmat og svo fórum við að sofa
en fyrst las mamma fyrir okkur.
7.febrúar 2000
Hjá Milenu Önnu, Hjallavegi 9.
Þegar skólinn var búinn fórum
við heim til mín. Klukkan hálf tvö borðum við
mat svo fór ég að læra og Sessa fór að
horfa á sjónvarpið. Klukkan fimm fórum við
og Jónína í sundlaugina. Sessa var bara að horfa
því hún var svo hrædd. Það var gaman
að vera með Sessu.
8.febrúar 2000
Hjá Birnu Dröfn.
Þegar ég og Sessa komum heim fórum
við að borða og hún fékk cornflakes í
matinn. Þegar við vorum búinn að borða fórum
við í Tarsan í tölvunni minni og svo kom mamma og
heilsaði henni mjög vel. Nokkrum klukkutímum seinna fór
ég til Hákons á spítalann og á meðan
horfði mamma og Sessa á fréttirnar.
10.febrúar 2000
Hjá Söndru Mjöll.
Sessa lenti í ævintýri heima
hjá mér. Litli bróðir minn henti henni niður
stigann. Svo fór ég að passa stelpu og ég leyfði
henni að hafa hana.
11.febrúar 200
Hjá Magnúsi Einari Magnússyni.
Ég og Sessa fengum far heim úr
skólanum svo fór hún að sofa, á meðan
fór ég í tölvuna og um morguninn var hún
búin að pissa undir. Nei bara að grínast. |