ofurhæn 
í Hjallaskóla 
í Andakílsskóla 
á Flateyri 
í Akraskóla í Skagafirði 
á Bakkafirði 
á Stokkseyri og Eyrarbakka
Dagbók Sessu
 
  
Sessa er ofurhæna sem ferðaðist um Ísland veturinn 1999-2000. Hún heimsótti sex skóla, þ.e.fimm skóla á landsbyggðinni og einn skóla á höfuðborgarsvæðinu. Hún lagði af stað frá Kópavogi  með kassa af hlutum frá nemendum í 5. bekk í Hjallaskóla í Kópavogi. Hún bætti í kassann á hverjum áfangastað, hlutum sem tengjast stöðunum. 
Sessa var svo heppin með að margir krakkar héldu dagbók fyrir hana bæði í riti og myndum. Skoðaðu dagbókina. 
 
 
Sessa var mjög ánægð með ferðina og hún sagði mörgum frá ferðinni. Einn vinur hennar, Finni fiðrildi, varð svo spenntur við að heyra allar sögurnar að hann ákvað að fara sjálfur í ferðalag. Skoðaðu hringferð Finna.  

 

Mamma" Sessu og umsjónarmaður með verkefninu var 
Guðbjörg Inga Guðmundsdóttir umsjónarkennari 5. GG veturinn 1999-2000 í Hjallaskóla.
Þar sem veturinn er kaldur vildi Sessa endilega fá trefil og það var ákveðið að krakkar sem tækju á móti henni ættu að prjóna viðbót við trefilinn hennar en hún vildi líka að þeir sem prjónuðu kvittuðu fyrir og skrifuðu upphafsstafi sína sem sérstökum efnispenna á líkama hennar. 
Þannig vann hver bekkur jafnóðum og Sessa var komin á staðinn, þ.e. skoðuðu þá hluti sem fylgja henni, fræddust um fyrri heimsóknarstaði, bættu sínum hlutum á Sessu, settu upplýsingar á heimasíðu og sendu Sessu svo af stað á næsta áfangastað. 

Vonandi hefur Sessa ofurhæna ekki sagt ýktar sögur en eins og við vitum eru hænur gjarnar á að ýkja sögurnar mikið. Það gerðist alla vega í sögunni ,,Það var alveg áreiðanlegt" eftir H.C. Andersen þar sem ein fjöður varð að fimm dauðum hænum. 
 

 
Skoðaðu vel í kassann  hennar Sessu , myndin var tekin þegar hún var að leggja af stað frá Hjallaskóla.  
- Smelltu á myndina!! 
 
 
 
 
 
 
 
 

 
 

 
 

 

 

  
Fara á Kidlink heimasíðuna
Umsjón: Hilda Torfadóttir  og Eygló Björnsdóttir 
Síðast uppfærð 12.október 2000
Copyright ® 1998 Kidlink . Öll réttindi áskilin. 
Sendið athugasemdir til  KIDLINK vefstjórans á Íslandi.