Málbjörg er félag sem var stofnað í október 1991. Markmið þess er að vinna að málefnum þeirra sem stama. Félagið vill auka þekkingu þeirra sem stama og annara á stami, vandamálum þeirra sem stama og meðferðum á stami.
Félagið vill auka möguleika þeirra sem stama á því að fá meðferð við hæfi og hefur haft samvinnu við sérfræðinga á þessu sviði. Félagið hefur einnig starfrækt sjálfshjálparhóp þar sem fólk kemur saman og ræðir vandamál sín, en það er mikilvægt sem fyrsta skref í átt til þess að ná betri tökum á staminu.


Félagar í Málbjörgu geta allir orðið.

Póstfang félagsins er:

Málbjörg
ph. 10043
130 Reykjavík

Hafðu samband