[Til
baka]
Aðalnámskrá grunnskóla
Þrepamarkmið í landafræði,
6. bekkur
Nemandi
Kort og myndir
-
læri að lesa legu staðar á heimskorti
út frá lengdar- og breiddargráðum
-
læri að lesa af hefðbundnu staðfræðikorti
upplýsingar um megindrætti landslags, landnotkun, búsetu
og samgöngukerfi
-
þekki á Evrópukorti nöfn og
legu Norðurlandanna, stærstu borgir, ár, vötn, eyjar
og fjallgarða
Landafræði Norðurlanda
-
kynnist landslagi, náttúrufari og auðlindum
Norðurlandanna og mótun ísaldarjökulsins
-
þekki megineinkenni gróðurfars og loftslags
Norðurlanda auk ríkjandi vinda og hafstrauma
-
átti sig á að hann er að alast
upp við aðstæður sem eru síbreytilegar
-
kynnist dæmum um ólík lífsskilyrði
fólks á Norðurlöndum
-
fjalli um í hvaða átt þróunin
stefnir í litlum samfélögum, meðalstórum
bæjum og stórum borgarsamfélögum á Norðurlöndunum
-
átti sig á hvað er líkt og
hvað ólíkt í atvinnulífi, búsetumynstri
og lífsháttum Norðurlandabúa
-
þekki helstu menningareinkenni Norðurlandabúa
eins og tungumál, trúarbrögð, lífskjör,
menntamál og félagsmál
-
þekki helstu atvinnuvegi Norðurlandabúa
og framleiðslu þeirra
-
kunni dæmi um hvernig náttúran hefur
haft áhrif á lifnaðarhætti fólksins
-
kynnist hvernig framleiðsla íbúanna
og neysla þeirra hefur áhrif á náttúruna
-
þekki dæmi um það hvað íbúar
Norðurlanda hafa gert til að ráða bót á
því sem miður hefur farið í umhverfi þeirra
-
kynni sér á hvaða sviðum Norðurlandaþjóðirnar
eiga með sér samstarf og í hverju það felst
[Til baka]
EAN 1999