[Til
baka]
Aðalnámskrá grunnskóla
Áfangamarkmið í hönnun og smíði við
lok 10. Bekkjar
Iðnhönnun og nýsköpun
Nemandi á að
Nýsköpun og hönnun
-
geta unnið eftir hönnunarferli þar sem gengið er út
frá ákveðinni meginhugmynd
-
geta skilgreint meginhugmynd
-
geta unnið sjálfur eftir ferlinu þörf – lausn – afurð
-
geta af sjálfsdáðum fundið þarfir og vandamál
í umhverfi sínu
-
hafa lært að teikna upp lausnir
Útfærsla hugmynda
-
geta útfært hugmynd með hliðsjón af líkamsbyggingu
og þörfum fólks og teiknað á lýsandi
hátt
-
geta útfært hugmyndir sínar í gegnum hönnunarferlið,
s.s. val á lausn, rannsókn, þróun lausnar, framkvæmdaáætlun,
prófun og mat
-
geta metið, prófað og rannsakað eigin verk
-
geta gert markaðskönnun á vöru
-
geta beitt tví- og þrívíðri fríhendisteikningu
við hönnun
-
geta skilgreint hugmyndir sínar og lýst með myndum
-
geta á meðvitaðan hátt gefið hlutum útlit
í samræmi við eigin smekk þar sem hann hugar að
þáttum, s.s. lögun og formi, litum, stærðum
og hlutföllum, áferð og yfirborðsmeðferð og
stíl
-
geta sett fram hönnunarplögg ásamt lýsingu á
eðli hönnunarinnar
Uppspretta hugmynda og skoðun þeirra
-
geta nýtt sér strauma og stefnur í menningunni í
hugmyndir og lausnir að eigin verkefnum
-
geta leitað sér að hugmyndum úr náttúrunni,
söfnum eða sýningum
-
geta hagnýtt sér upplýsingatækni við hugmyndaleit
Tæknigrunnur
Nemandi á að
Orka
-
hafa hugmynd um hvernig tæki geta numið orku í umhverfinu
og gefið andsvar
Rafeindafræði
-
þekkja helstu tákn rafeindafræðinnar og geta lesið
einfaldar rafteikningar
Tölvustýringar
-
kunna skil á tölvustuddri hönnunarframleiðslu og hvernig
hún getur samþætt handverk og netheima
-
kunna skil á hugtakinu sjálfvirkni
-
þekkja grunnhugtök stýrifræðinnar eins og nemi,
rofi, stýring, ílag, frálag og endurvarp
-
kunna skil á forritanlegum stýringum
Vélræn högun
-
geta nýtt sér forritanlegar stýringar í nytjahluti
Högun og mannvirki
-
geta teiknað upp yfirlitsmynd af hverfaskipulagi
-
hafa hugmynd um samspil náttúrulegs umhverfis og manngerðs
í hönnun
Tæknivitund
-
geta nýtt tæknilegt innsæi sitt í verkefnavinnu
-
vera læs á leiðbeiningar sem fylgja helstu rafeindatækjum
Handverk og verkstæðisþættir
Nemandi á að
Handverksþekking
-
geta lagt mat á gæði og ástand þeirra verkfæra
sem verið er að nota hverju sinni
Handverkstækni
-
hafa frumkvæði og kunnáttu í að nota viðeigandi
verkfæri í samræmi við verkefni
-
sýna rétta beitingu algengra handverkfæra
Öryggisþættir
-
gera sér grein fyrir samhengi á milli viðhalds og gæða
verkfæra og öryggisþátta
-
sýna ábyrga meðferð yfirborðsefna með tilliti
til heilnæmis
-
sýna rétta líkamsbeitingu við vinnu
Rafmagnshandverkfæri og vélar
-
geta notað ýmsar smíðavélar, t.d. beygjuvél
og sogformunarbúnað fyrir plast
-
kunna skil á hvernig rennt er í trérennibekk á
platta og/eða patrónu
-
geta metið ástand þeirrar smíðavélar
sem verið er að nota
Á verkstæðinu
-
geta skipulagt verk með öðrum á sjálfstæðan
hátt
-
geta unnið eftir verk- og tímaáætlun
-
geta starfað einn eða í smærri hóp
Efni
-
geta valið viðeigandi efni í samræmi við notkunarsvið
og eigin smekk
-
geta valið viðeigandi yfirborðsefni í samræmi
við eðli verkefna
-
geta á sjálfstæðan og ábyrgan hátt
hreinsað málningaráhöld og gengið frá
eftir sig
Framleiðslan
Nemandi á að
-
vera fær um að gera kostnaðar- og verkáætlun
að framleiðslu eigin hugmynda
-
vera fær um að skipuleggja litla framleiðslueiningu um framleiðslu
á hlut
-
geta spáð fyrir um lífssögu hlutar
-
kunna skil á þróun vöru með tilliti til ólíkra
viðmiðana, t.d. þarfa markaðar, tísku og strauma,
notagildis og endingar vöru
-
geta hagnýtt sér tölvustudda hönnunarframleiðslu
við hönnun og smíði hluta
-
geta framleitt nytjahluti með áherslu á listræna
útfærslu
Einstaklingur, umhverfi, verkmenning
Nemandi á að
-
geta tekið þátt í atvinnulífi sem byggist
á verk- og tækniþekkingu og hæfni til samskipta
-
geta fjallað um tækninotkun í nánasta umhverfi,
samfélaginu og atvinnulífi
-
geta tengt námið við framhaldsnám eða þátttöku
í atvinnulífi
-
geta rætt um áhrif tækni á náttúru,
samfélag og menningu
-
átta sig á gildi símenntunar fyrir lífið
-
hafa þroskað með sér frumkvæði og áræði
til að sjá möguleika á að skapa ný atvinnutækifæri
eða bæta umhverfið
Áhrif á getu og viðhorf í daglegu lífi
Nemandi á að
-
hafa tileinkað sér jákvæða gagnrýna
hugsun við ákvarðanatöku
-
geta tekið ákvörðun byggða á siðviti,
meginhugmynd, fagurfræðilegu mati og tæknilegu innsæi
-
geta kynnt viðfangsefni sitt með ýmsu móti, s.s.
framsögn, rituðu máli og tæknimiðlum
-
geta rökrætt gildi námsins í daglegu lífi
-
geta metið handverk út frá fagurfræðilegum
gildum
-
geta yfirfært og hagnýtt sér námið í
öðrum greinum og öfugt
Stuðningsþættir
Nemandi á að
Upplýsingalæsi
-
hafa lært að skoða og leita sér að upplýsingum
og hugmyndum á listasöfnum, með því að
skoða mannvirki og söfn
-
hafa heimsótt fagfólk og fyrirtæki og sótt sér
ráðgjöf og upplýsingar
-
hafa þjálfast í því að rýna
í eigin huga og nýta eigin upplýsingagrunn
-
hafa leitað að uppsprettu hugmynda í náttúrunni
og teiknað þær upp
Tæknilæsi
-
átta sig á þætti þyngdarkrafta við
hönnun burðarvirkja
-
gera sér grein fyrir því hvernig hlutir í umhverfinu
eru unnir, úr hvaða efnivið þeir eru og tæknilegri
uppbyggingu þeirra
-
hafa öðlast skilning á eðli og notkun sjálfvirks
og tölvustýrðs vélbúnaðar og geta bent
á notkunarsvið þeirra
-
hafa hugmynd um grunnuppbyggingu algengra rafeindatækja
Söguvitund
-
þekkja helstu strauma og stefnur í hönnun og tísku
20. aldar, t.d. Bauhaus
-
þekkja til íslenskrar uppfinningasögu
Siðvitund
-
ræða í hóp hvaðan frumlegar hugmyndir koma
og hverra eign þær eru
-
hafa þjálfast í að útlista og rökstyðja
gildi hugmynda sinna fyrir manninn og umhverfi hans
-
hafa lært að bera virðingu fyrir skoðunum annarra og
hugmyndum þeirra
-
geta lagt eigið mat á nytjahluti í umhverfi sínu
út frá útliti þeirra og notagildi
Heimavinna
-
hafa lesið bækur sem fjalla um tækni og hönnun
-
hafa gert einfalda markaðsathugun
-
hafa gert rannsóknir á forsendum eigin hönnunar
-
hafa þjálfast í hugmynda- og þarfaleit
Mat
-
geta metið á sjálfstæðan hátt hvaða
kröfur eru gerðar til vandvirkni og frágangs afurðar
út frá hlutverki hennar
-
geta metið vinnu sína og annarra í hóp
[Til baka]
EAN 1999