[Til
baka]
Aðalnámskrá grunnskóla
Lokamarkmið í hönnun og smíði
Nemandi
Iðnhönnun og nýsköpun
-
geti nýtt sér margs konar aðferðir við söfnun,
skoðun, greiningu og úrvinnslu hugmynda
-
geti greint þarfir í umhverfi sínu, tækifæri
og möguleika við hönnun og framleiðslu á hlut,
kerfi eða umhverfi út frá meginhugmynd
-
hafi lært að meðhöndla meginhugmyndir í gegnum
hönnunar- og nýsköpunarferli
-
geti nýtt sér ýmsar tísku- og listastefnur
í umhverfi sínu við útfærslu hugmynda
Tæknigrunnur
-
geri sér grein fyrir möguleikum tækninnar og hagnýtingu
hennar í umhverfinu
-
hafi öðlast innsæi í eðli og hagnýtingu
tækninnar í verklegri framkvæmd
Handverk og verkstæðisþættir
-
öðlist þekkingu og færni í notkun, meðferð
og möguleikum ólíkra tækja og verkfæra
-
öðlist þekkingu og færni í notkun, meðferð
og möguleikum ólíkra efna
-
öðlist innsýn í að velja, skilgreina og byggja
upp heppilegar framleiðsluaðstæður í samræmi
við markmið og tilgang framleiðslu
-
hafi tileinkað sér ábyrga umgengni og öryggisreglur
við verklega vinnu
-
hafi tileinkað sér rétta líkamsbeitingu og hollustuvenjur
við vinnu
Framleiðslan
-
öðlist innsýn í framleiðsluferli og lífssögu
hluta í verklegri framkvæmd
-
kunni skil á margvíslegum framleiðsluaðferðum
við gerð hluta og vöru
-
kunni skil á helstu þáttum vöruþróunar,
verkáætlana og markaðssetningar vöru
Einstaklingur, umhverfi, verkmenning
-
geti nýtt sér verkkunnáttu sína til þátttöku
í atvinnulífi er byggist á verklegri framkvæmd,
tækniþekkingu og hæfni til samskipta
-
verði meðvitaður um getu sína til að móta
umhverfi sitt með skapandi starfi á verksvæði
-
hafi þroskað með sér tilfinningu fyrir samvinnu og
félagslegri ábyrgð til að takast á við
umhverfisþætti svo sem mengun og náttúruvernd
Áhrif á viðhorf og getu nemandans í daglegu lífi
-
efli frumkvæði sitt, áræði og framtak í
verklegri framkvæmd
-
þroski með sér innra mat á notagildi hlutanna og
fegurð þeirra
-
styrki sjálfsmynd sína, færni og þekkingu með
því að móta eigin hugmynd
Stuðningsþættir
-
geti nýtt sér margs konar upplýsingalindir sem uppsprettu
og við þróun og framkvæmd hugmynda
-
verði læs á tæknina í umhverfi sínu
-
öðlist innsýn í áhrif nýsköpunar,
tækni og hönnunar á samfélag og umhverfi í
fortíð, nútíð og framtíð
-
öðlist færni í að meta og rökstyðja
gildi og áhrif hugmynda og afurða á umhverfið
-
geti á sjálfstæðan, raunhæfan og skapandi
hátt lagt mat á gæði og möguleika eigin verka
og annarra
[Til baka]
EAN 1999