![]() |
Gróður | |||
![]()
Villtur gróður er auðvitað hluti náttúrunnar og hann býsna mikilvægur. Grænar plöntur eru undirstaða lífríkisins. Þær taka til sín efni úr lofti, vatni og jörð. Með orku sólarljóssins breyta þær þessum efnum í orkuríka næringu fyrir dýr og menn.
Villtar plöntur skipta líka miklu máli á ýmsan annan hátt. Þær veita dýrum og fólki fæðu og skjól, úr þeim eru unnin lyf og þær auka fegurð og fjölbreytni. Flest fólk býr þó í umhverfi þar sem mest ber á ræktuðum plöntum. | ||||
![]() |
|
|
| |
| NÁTTÚRUVERNDARRÁÐ | nvvefur@ismennt.is | |||