![]() |
Byggð í náttúru | |||
![]()
Náttúran er alls staðar í einhverri mynd, allt er frá henni komið, allt er henni háð. Víðast hafa menn breytt náttúrunni. Hafi menn mótað náttúruna á sýnilegan hátt, til dæmis með byggingum, þá er talað um manngert umhverfi. Skilin á milli manngerðs umhverfis og náttúru eru þó oftast óljós. Náttúran þrengir sér inn í hið manngerða umhverfi og minnir á sig. Maðurinn hefur líka með tækni sinni og umsvifum breytt náttúrunni langt út fyrir þau svæði sem hann hefur markvisst mótað, til dæmis með veiðum, landbúnaði og mengun. | ||||
![]() |
|
|
| |
| NÁTTÚRUVERNDARRÁÐ | nvvefur@ismennt.is | |||