Hagræn náttúruvernd. Hver sér um ...
skipulag?


Hver og einn getur oftast ráðið því hvernig hann eða hún skipuleggur sitt eigið herbergi og fjölskyldan eða sambýlisfólk hjálpast að við að koma sér fyrir inni í íbúðinni sinni. Umhverfið utan húss snertir líka nágrannana, enginn einstaklingur getur einn tekið ákvörðun um hvar íbúðarhús á að standa eða vegur að liggja. Áður en farið er út í að framkvæma eitthvað sem breytir umhverfi eða náttúru verður að skipuleggja hvað á að gera og kynna það fyrir öllum sem málið varðar.

Sveitarstjórnir annast skipulag innan síns héraðs; þær ákveða hvar eiga að vera götur, íbúðahverfi, skólar, verslanir, garðar og allt annað. Skipulag ríkisins hefur yfirumsjón með skipulagi á landinu í heild. En hvað getum við gert?





NÁTTÚRUVERNDARRÁÐ nvvefur@ismennt.is