Við nýtum í hófi


Allir nýta náttúruna á einhvern hátt. Sjómenn og bændur hafa atvinnu af því að nýta auðlindir þjóðarinnar í umboði hennar og þurfa stöðugt að vera á verði að verðmætin sem þeim er trúað fyrir séu ekki ofnýtt heldur vel um þau gengið. Aðrir nýta náttúruna beint eða óbeint sér til ánægju eða búdrýginda. Margir hafa gaman af að veiða fugla eða fiska, tína ber, grös eða blóm, eða þeir eiga hesta sem eru á beit í haga stóran hluta ársins. Allir þurfa að hafa í huga að nýta náttúruna í hófi og sýna henni virðingu.





NÁTTÚRUVERNDARRÁÐ nvvefur@ismennt.is