![]() |
Við lagfærum | |||
![]()
Við vitum að þegar við tökum til heima hjá okkur þarf sums staðar bara að þrífa, annars staðar þarf að færa hluti á rétta staði og svo getur þurft að lagfæra eitthvað sem hefur skemmst, ef það er þá ekki alveg ónýtt. Tiltektin er auðveld ef allir hafa gengið vel um. Allir á heimilinu þurfa að hjálpast að og þá skilja þeir líka hve mikilvægt er að ganga vel um. Sama máli gegnir um umgengni okkar við náttúruna. Ef allir ganga vel um þarf minna að þrífa og lagfæra. Sums staðar hefur ekkert verið fært úr stað (óröskuð svæði), aðra staði getur þurft að lagfæra. Allir geta tekið þátt, til dæmis með því að vera virkir í einhverjum samtökum um náttúruvernd en þó ekki síst með því að gæta þess að skilja aldrei við neinn stað í verra ástandi en að honum var komið. | ||||
![]() |
|
|
| |
| NÁTTÚRUVERNDARRÁÐ | nvvefur@ismennt.is | |||