Félagsleg náttúruvernd.
Hver ber ábyrgð?


Skipulagsyfirvöld, svo sem sveitarstjórnir, bera ábyrgð á að skilin séu eftir opin svæði til útivistar sem fjölbreyttust að gerð, ræktuð og mótuð en ekki síður óröskuð. Alþingi tryggir almannarétt með lögum sem gefa skýrt til kynna að fólk hafi rétt til þess að fara um landið. Náttúruverndarráð er sú stofnun sem haft hefur það hlutverk að standa vörð um almannarétt. Það hefur einnig aðstoðað sveitarfélög við stofnun fólkvanga, séð um friðlýsingu náttúrulegra svæða og víða haft forgöngu um að bæta aðstöðu til útivistar. Árið 1997 tekur Náttúruvernd ríkisins við þessu hlutverki. Ábyrgð almennings er líka mikil. Landeigendur og aðrir forráðamenn lands þurfa að hafa skilning á nauðsyn þess að allir komist að landinu og hafi tækifæri til að njóta þess. Fólk þarf að vera vakandi, nýta rétt sinn og standa vörð um hann. Útivist og samskipti við náttúru eru forsenda þess að fólk kynnist náttúrunni og læri að virða hana en sú þekking er grunnur náttúruverndar.





NÁTTÚRUVERNDARRÁÐ nvvefur@ismennt.is