![]() |
verndun menningarminja og búsetulandslags | |||
![]()
Víða eru minjar um líf fólks, sumar allt frá því að land byggðist. Þetta eru rústir af bæjum og öðrum byggingum, túngarðar og hleðslur, vörður og vegir. Slíkar minjar, og allra næsta nágrenni þeirra, eru friðlýstar sem þjóðminjar og eru í vörslu Þjóðminjasafns Íslands. Stundum eru stór svæði órjúfanlega tengd sögu þjóðarinnar, eins og Þingvellir. Sum tiltölulega stór svæði geta verið lýsandi fyrir ákveðna atvinnuhætti áður fyrr, landbúnað, sjómennsku og verslun, eða að eftir þeim liggja gamlar og merkar þjóðleiðir. Sérstök lög hafa verið sett um Breiðafjörð til að vernda náttúru og menningarminjar. | ||||
![]() |
|
|
| |
| NÁTTÚRUVERNDARRÁÐ | nvvefur@ismennt.is | |||