Hvað er friðlýst?
Þjóðgarðar


Þjóðgarðar gegna tvíþættu hlutverki, að friða sérstæða náttúru og að veita fólki aðgang að henni. Til að svæði geti talist þjóðgarður þarf það að vera tiltölulega stórt og óraskað. Þjóðgarður þarf að búa yfir sérstakri náttúru sem fær áfram að þróast eftir eigin lögmálum.

Allir hafa jafnan aðgang að þjóðgörðum sér til ánægju, menntunar og heilsubótar svo fremi þeir fylgi settum umgengnisreglum. Eðli sínu samkvæmt geta þjóðgarðar varla verið í einkaeign enda eiga þjóðgarðar að vera í ríkiseign nema sérstakar ástæður mæli með öðru.

Íslensku þjóðgarðarnir eru tveir, Skaftafell og Jökulsárgljúfur. Þingvellir eru oft taldir til þjóðgarða en frá árinu 1930 hafa þeir verið friðlýstir með sérstökum lögum sem helgistaður allrar þjóðarinnar.





NÁTTÚRUVERNDARRÁÐ nvvefur@ismennt.is