Jökulsárgljúfur


Þjóðgarðurinn í Jökulsárgljúfrum er í Kelduneshreppi í Norður-Þingeyjarsýslu. Hann liggur vestan Jökulsár á Fjöllum, frá Dettifossi í suðri til Ásbyrgis í norðri og er um 120 ferkílómetrar að flatarmáli.

Eins og nafn þjóðgarðsins ber með sér þá rennur Jökulsá þar í gljúfrum, stærstu og hrikalegustu árgljúfrum á Íslandi. Talið er að þau hafi hún grafið í gífurlegum hlaupum, svokölluðum hamfarahlaupum. Nokkrir fallegir fossar eru í Jökulsárgljúfrum en Dettifoss er þeirra langmestur.

Allt umhverfi Jökulsárgljúfra er meira og minna mótað af hamfarahlaupum Jökulsár. Fjölbreytt landslag, gróður og dýralíf spila skemmtilega saman. Staðir í þjóðgarðinum sem margir þekkja eru til dæmis:

Ásbyrgi, hóffar Sleipnis, skjólsæll staður með háum hamraveggjum.

Hljóðaklettar, völundarhús kletta sem eru í raun fornir eldgígar sem lausa gosefninu hefur verið skolað af.

Hólmatungur, en þar spretta upp lindir sem renna í gegnum hvannstóð út í Jökulsá.

Hafragil, hrikalegt gil umkringt hrjóstrugum melum.

Um þjóðgarðinn liggja margar merktar gönguleiðir og tjaldsvæði eru í Ásbyrgi og Vesturdal.




NÁTTÚRUVERNDARRÁÐ nvvefur@ismennt.is