![]() |
Mývatn og Laxá | |||
![]()
Mývatn er stórt stöðuvatn á jaðri eldvirka beltisins sem liggur um norðurland. Vatnið sprettur upp í ótal lindum undan hraunjaðri, og eldgígar og eldfjöll móta landslagið. Frægar eldstöðvar eru í Mývatnssveit, t.d. Hverfjall (Hverfell), Krafla og Þrengslaborgir. Eldvirkni er mikil og fjölbreytt og þykir gefa óvenju góða hugmynd um hvernig jarðskorpan gliðnar vegna landreks. Ýmsar hraunmyndanir við Mývatn eru víðkunnar, einkum Dimmuborgir og Kálfastrandarstrípar, og gervigígar setja mikinn svip á vatnsbakkana.
Mývatn sjálft, ásamt Laxá, sem fellur úr því, er frjósamasta ferskvatn hér á landi. Þar er fuglalíf með afbrigðum mikið, einkum vatna- og votlendisfuglar ýmiss konar, og silungsveiði er góð. Laxveiði er í ánni neðantil. Lífauðgin byggist á næringarríku jarðvatni, mikilli sólgeislun og hagstæðu vatnsdýpi fyrir botngróður og vatnafugla.
Hlunnindabúskapur, einkum silungsveiði og eggjatekja, hefur verið mikilvægur liður í lífsbjörg Mývetninga. Ásælni í vatns- og gufuafl, svo og jarðefni, ógnar lífríki og annarri náttúru svæðisins. Náttúruverndarráð hefur sett upp gestastofu í Mývatnssveit. Þar er veitt fræðsla um náttúru og verndun hins friðlýsta svæðis. Náttúrurannsóknastöðin við Mývatn annast ráðgjöf og rannsóknir er varða náttúruvernd svæðisins. Vefsíður stöðvarinnar hafa að geyma ítarlegar upplýsingar um náttúru Mývatnssveitar og verndun hennar. | ||||
![]() |
|
|
| |
| NÁTTÚRUVERNDARRÁÐ | nvvefur@ismennt.is | |||