![]() |
Suðurland | |||
Friðlönd Dyrhólaey, Mýrdalshreppi, V-Skaftafellssýslu. Lýst friðland með auglýsingu í Stjórnartíðindum B, nr. 101/1978. Stærð 510 ha. Friðland að fjallabaki, Rangárvallasýslu. Lýst friðland með auglýsingu í Stjórnartíðindum B, nr. 354/1979. Stærð 47.000 ha. Gullfoss, Biskupstungnahreppi, Árnessýslu. Lýstur friðland með auglýsingu í Stjórnartíðindum B, nr. 141/1979. Stærð 160 ha. Herdísarvík, Ölfushreppi, Árnessýslu. Lýst friðland með auglýsingu í Stjórnartíðindum B, nr. 121/1988. Stærð 4.000 ha. Oddaflóð, Rangárvallahreppi, Rangárvallasýslu. Lýst friðland með auglýsingu í Stjórnartíðindum B nr. 634/1994. Stærð 540 ha. Pollengi og Tunguey, Biskupstungnahreppi, Árnessýslu. Lýst friðland með auglýsingu í Stjórnartíðindum B nr. 457/1994. Stærð 684 ha. Surtsey, Vestmannaeyjum. Lýst friðland 1965. Friðlýsing endurskoðuð með auglýsingu í Stjórnartíðindum B, nr. 122/1974. Stærð 270 ha. Vegna vísindarannsókna er óheimilt að fara í eyna án leyfis Náttúruverndarráðs. Skot eru bönnuð nær eynni en 2 km. Þjórsárver, Árnessýslu, Rangárvallasýslu. Lýst friðland 1981. Friðlýsing endurskoðuð með auglýsingu í Stjórnartíðindum B, nr. 507/1987. Stærð 37.500 ha. Svæðið er verndað samkvæmt samþykkt um votlendi sem hefur alþjóðlegt gildi, einkum fyrir fuglalíf (Ramsar). Á tímabilinu 1. maí til 10. júní er umferð um varplönd heiðargæsar bönnuð. Náttúruvætti Gervigígar í Álftaveri, Skaftárhreppi, V-Skaftafellssýslu. Friðlýstir sem náttúruvætti með auglýsingu í Stjórnartíðindum B, nr. 105/1975. Stærð 3.650 ha. Dverghamrar, Skaftárhreppi, V-Skaftafellssýslu. Friðlýstir sem náttúruvætti með auglýsingu í Stjórnartíðindum B, 446/1987. Stærð 2 ha. Jörundur í Lambahrauni, Árnessýslu. Friðlýstur sem náttúruvætti með auglýsingu í Stjórnartíðindum B, nr. 333/1985. Stærð 0,1 ha. Vegna verndunar jarðmyndana er óheimilt að fara í hellinn án leyfis Náttúruverndarráðs. Kirkjugólf, Skaftárhreppi, V-Skaftafellssýslu. Friðlýst sem náttúruvætti með auglýsingu í Stjórnartíðindum B, nr. 426/1987. Stærð 0,2 ha. Lakagígar, V-Skaftafellssýslu. Friðlýstir sem náttúruvætti 1971. Friðlýsing endurskoðuð með auglýsingu í Stjórnartíðindum B, nr. 215/1975. Stærð 16.000 ha. Skógafoss, A-Eyjafjallahreppi, Rangárvallasýslu. Friðlýstur sem náttúruvætti með auglýsingu í Stjórnartíðindum B, nr. 477/1987. Stærð 2.204 ha. Fólkvangar Bláfjöll, Bessastaðahreppi, Garðabæ, Gerðahreppi, Grindavík, Hafnarfirði, Kópavogi, Reykjanesbæ (áður Keflavík og Njarðvík), Reykjavík, Sandgerði (áður Miðneshr.), Seltjarnarnesi, Vatnsleysustrandarhreppi og Ölfushreppi, Gullbringusýslu, Kjósarsýslu og Árnessýslu. Fólkvangur 1973. Friðlýsing endurskoðuð með auglýsingu í Stjórnartíðindum B, nr. 173/1985. Stærð 8.400 ha. Önnur friðuð svæði Geysir, Biskupstungnahreppi, Árnessýslu. Hverasvæðið var í umsjá Geysisnefndar frá 1953 til ársloka 1990, en frá 1. janúar 1991 í umsjá Náttúruverndarráðs. Stærð 15 ha.
Þingvellir, Þingvallahreppi, Árnessýslu. Friðlýst samkvæmt lögum nr. 59/1928. Svæðið er í umsjá Þingvallanefndar sem starfar undir Alþingi. Stærð 5.000 ha. | ||||
![]() |
|
|
| |
| NÁTTÚRUVERNDARRÁÐ | nvvefur@ismennt.is | |||